Sími : 5 800 900
Árnamessa

ÁRNAMESSA í STYKKISHÓLMI - laugardaginn 14. mars 2009

Lýðheilsustöð boðar til málþings helgað Árna Helgasyni um stöðu áfengismála á Íslandi, haldið í grunnskóla Stykkishólms, Borgarbraut 6, kl. 12-16:30.

Málþing og rútur í boði Lýðheilsustöðvar (ókeypis fyrir þátttakendur).
MINNT ER Á AÐ RÚTURNAR FARA KL. 9 STUNDVÍSLEGA FRÁ BSÍ OG ERU UM 10 MÍN. SÍÐAR VIÐ N1 BENSÍNSTÖÐINA Á ÁRTÚNSHÖFÐA.

Árnamessa - Þurfi að koma skilaboðum áleiðis má hringja til Bryndísar, s. 8 400 903.

Skákmót - hringja má til Helga, s. 664 8320.

Dagskrá_Árnamessa_14-3-09. Smellið á myndina til að stækka og prentaSkrá þarf þátttöku FYRIR 10. MARS: www.lydheilsustod.is/skraning - merkja Árnamessa. Málþingið er í boði Lýðheilsustöðvar og því þarf ekki að fylla út í reiti fyrir greiðanda.

Rútur leggja af stað frá BSÍ kl. 9. Þeir sem EKKI koma í rútuna skrái það í athugasemdagluggann í skráningarforminu.

Hægt er að taka fundargesti upp í við bensínstöð N1 Ártúnshöfða en það þarf að koma fram í athugasemdaglugganum.

Rútuferðirnar eru einnig í boði Lýðheilsustöðvar.

Dagskrá

Fundarstjóri: Helgi Seljan

Kl.

12:00 HÁDEGISMATUR
13:00     Setning málþings
                     Helgi Seljan, fv. alþingismaður og fundarstjóri Árnamessu
13:10            Árni Helgason og bindindismálin: um frelsi, kærleik og betra samfélag
                     Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustöðvar
13:30            Frjáls félagasamtök í forvörnum: staða og tækifæri
                     Árni Einarsson, uppeldisfræðingur
13:50            Staða áfengis í samfélaginu
                     Hildigunnur Ólafsdóttir, afbrotafræðingur
14:10            Flott án fíknar: nútíma forvarnir
                     Guðrún Snorradóttir, landsfulltrúi UMFÍ
14:30            Straumar og stefnur í áfengispólitík
                     Rafn M Jónsson, verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna, Lýðheilsustöð

14:50            KAFFIHLÉ OG SKÁKMÓT ÁRNAMESSU*


15:30            Panelumræður
                     Stjórnandi: Halldór Árnason, ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneyti
16:15            Málþingi slitið

 

16:30            RÚTUFERÐ TIL BAKA

* Í tengslum við Árnamessu er haldið veglegt skákmót fyrir grunnskólanema (sjá kynningu á skákmótinu)

Einnig eru upplýsingar á vef Skáksambandsins.

Skákmót Árnamessu. Smellið á mynd til að stækka og prenta

Lýðheilsustöð þakkar öllum sem aðstoðað hafa við framkvæmd málþingsins og Stykkishólmsbæ fyrir afnot af ljósmynd af bænum.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica