Munntóbak er heilsuspillandi
Á Íslandi er með lögum bannað að flytja inn, framleiða og selja fínkornótt neftóbak og allt munntóbak. Lögin tóku gildi 1. febrúar 1997 og voru sett til að bregðast við tilskipun Evrópusambandsins sem gerði aðildarríkjunum skylt að banna munntóbak, þó ekki „traditional tobacco products“ sem
getur átt við gamla íslenska neftóbakið. Tóbaksframleiðendur höfðu verið að markaðssetja nýjar tegundir munntóbaks erlendis og einkum höfðað þar til ungs fólks. Sums staðar, t.d. í Svíþjóð, hefur þetta haft þær afleiðingar að umtalsverður hluti unglinga er farinn að nota „reyklaust tóbak“ að staðaldri. Þrátt fyrir bannið hér Íslandi er talið að nú noti um 3700 manns munntóbak daglega og ýmislegt bendir til þess að sá hópur fari stækkandi.
,,Munntóbaksleikurinn”
Til að bregðast við þessu er að fara af stað verkefni sem ætlað er að vekja athygli ungs fólks á áhrifum munntóbaksneyslu. Þetta er m.a. gert með s.k. ,,munntóbaksleik” sem aðgangur er að á netinu. Um leið og farið er í leikinn (sem m.a. sýnir að munnurinn/tennurnar verða ekki mjög aðlaðandi við þessa notkun) er miðlað fróðleik um munntóbak, ánetjun þess og áhrif. Einnig eru sýndar góðar leiðir til að hætta notkun munntóbaksins – sem reyndar er líka hægt að nýta sér við að hætta að reykja. Leikinn og fræðsluefnið geta þjálfarar, kennarar, forvarnafulltrúar, tómstundafulltrúar, hjúkrunarfræðingar og aðrir nýtt sér til að ræða um munntóbaksnotkun við ungt fólk. Veggspjöldum, sem vekja athygli á afleiðingum munntóbaksneyslu og munntóbaksleiknum, verður dreift um allt land en formlega verður aðgangur opnaður að leiknum 17. október n.k. og slóðin að honum er hér.
Fróðleiksmolar um munntóbak
- Magn nikótíns í munntóbaki er oftast mörgum sinnum meira en í reyktóbaki og verða neytendur því oft mjög háðir því.
- Þeir sem eru háðir munntóbaki eru, samkvæmt sænskum rannsóknum, með í vörinni að meðaltali 13 til 15 tíma á dag og dæmi eru um að menn setji í vörina áður en þeir leggjast til svefns.
- Nær helmingur munntóbaksneytenda vill hætta neyslunni og þriðjungur vill fá aðstoð til þess.
- Takmarkaðar vísindalegar rannsóknir eru til um það hvernig losna eigi undan munntóbaksfíkninni en í stórum dráttum gilda þar sömu lögmál og um reykingar.
Frekari aðstoð við að hætta tóbaksnotkun
Á gagnvirku heimasíðunni www.reyklaus.is er hægt að fá ókeypis aðstoð við að hætta munntóbaksnotkun. Þar er hægt að taka próf sem sýnir hvernig tóbaksneytandi viðkomandi er og hann fær í kjölfarið ábendingar um hvað hann þurfi að gera til að hætta. Skráðir notendur fá stuðningspóst og á síðunni er vinsæl spjallrás þar sem fólk segir frá reynslu sinni af að reyna að hætta að reykja – sem virkar líka sem stuðningur og hvatning fyrir aðra í sömu sporum. Einnig er hægt að fá ókeypis símaráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingunum sem svara Reyksímanum 800 6030.
Höfum hugfast að allt tóbak er ávanabindandi, hvort sem það er reykt eða ekki.
Viðar Jensson
verkefnisstjóri tóbaksvarna, Lýðheilsustöð
