Sími : 5 800 900

. . um tannvernd

Taktu upp þráðinn!

Það er ekki nóg að bursta tennurnar tvisvar á dag, það þarf líka að nota tannþráð. Samkvæmt nýlegri rannsókn Lýðheilsustöðvar, Heilsa og líðan Íslendinga 2007, eru landsmenn almennt duglegir að bursta tennurnar en aðeins 12% karla og 24% kvenna á aldrinum 18-79 ára hreinsa daglega á milli tannanna með tannþræði. Ef viðhalda á góðri tannheilsu er nauðsynlegt að nota tannþráð að lágmarki einu sinni á dag. Lesa meira
 

Munnþurrk þarf að meðhöndla

Eðlileg munnvatnsframleiðsla hefur mikið að segja fyrir góða líðan og viðheldur heilbrigði munnsins. Munnvatnið smyr og skolar munninn, stuðlar að réttu sýrustigi og inniheldur verndandi efnasambönd fyrir tennur og umhverfi þeirra. Í munnvatni eru auk þess efnahvatar sem byrja meltingu fæðunnar.

Lesa meira

 

Heilbrigðar tennur - heilar tennur

Það er eftirsóknarvert að hafa heilbrigðar tennur alla ævi. Flestir Íslendingar vita í dag hvað veldur tannskemmdum. Óhreinindi sem við köllum tannsýklu, setjast á yfirborð tannanna og því er nauðsynlegt að bursta þær kvölds og morgna. Lesa meira
 

Göt og skart í munni hafa áhrif á heilsuna

Tísmynd1_skart_i_tungukan er harður húsbóndi og spyr sjaldnast um áhrif á heilsuna. Í vaxandi mæli lætur ungt fólk gata líkamann hér og þar og fyllir í götin með pinnum, hringjum eða öðru ,,skarti”. Um fagurfræðina skal ekki fjölyrt hér heldur vakinn athygli á því að gati í tungu, vör og kinn fylgir meiri áhætta en gati í eyra þar sem sýkingarhætta er mikil í munnholi. Lesa meira
 

Páskaeggin og tannheilsan

Að borða páskaegg, fyllt með sælgæti er tilhlökkunarefni um hverja páska. Ekki spillir málshátturinn sem segir alltaf eitthvað óvænt og spennandi. Þannig viljum við hafa það, páskaegg helst sömu tegundar og að minnsta kosti jafn stórt og í fyrra.

Lesa meira
 

Hvað er glerungseyðing tanna?

Glerungseyðing er vaxandi vandamál hjá íslenskum unglingum – en hvað er glerungseyðing tanna? Glerungseyðing er það kallað þegar sýra leysir upp tannvef. Bein tannkrónunnar er hulið hörðu lagi sem nefnt er glerungur. Glerungurinn er harðasti vefur líkamans og er 95% steinefni en að öðru leyti vatn og lífræn efni..

Lesa meira

 

Karíus og Baktus eru mikið á kreiki um jólin!

Aðventan, aðdragandi jólanna, má segja að sé ein löng skemmti- og gleðistund hjá flestum börnum, hvort sem er með fjölskyldunni eða í skólanum.

Lesa meira
 

Karíus og Baktus fara ekki í jólafrí!

Nú þegar tími aðventu og jóla fer í hönd er mikið um samveru- og gleðistundir. Gleðistundum sem þessum fylgja oft kræsingar og góðgæti. Það er gott og blessað og hluti af okkar menningu. Samt má velta því fyrir sér hvort ekki megi gæta meira hófs í neyslu sætinda og gosdrykkja á þessum árstíma sem öðrum.

Lesa meira

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica