Sími : 5 800 900
. . um tannvernd

Karíus og Baktus eru mikið á kreiki um jólin!

Aðventan, aðdragandi jólanna, má segja að sé ein löng skemmti- og gleðistund hjá flestum börnum, hvort sem er með fjölskyldunni eða í skólanum.

Karíus og Baktus, klippt

Í fjölskylduboðum er oft mikið um kræsingar og góðgæti, sem er jú hluti af okkar menningu. Samt má velta því fyrir sér hvort það skemmi nokkuð gleðina að gæta meira hófs í bjóða sætindi og gosdrykki á þessum árstíma, sem öðrum.

Vinsamleg tilmæli til jólasveinanna!

Jólasveinarnir koma bráðum niður af fjöllunum, hver á fætur öðrum, til þess að gleðjast með okkur hinum sem búum til sjávar og sveita. Þegar þeir koma til byggða eru þeir sannkallaðir gleðigjafar - syngja og tralla og gefa góðum börnum glaðning í skóinn. En þar langar okkur að biðja jólasveinana að hafa eftirfarandi í huga:

Kæru jólasveinar,

Við hjá Lýðheilsustöð viljum biðja ykkur að gæta hófs í sælgætisgjöfum. Það er mikið sælgæti í boði fyrir börnin okkar. Í matvöruverslunum og sjoppum eru heilu sælgætisbarirnir og blessuð börnin horfa þar löngunaraugum á litadýrðina. Sumir foreldrar reyna að stemma stigu við sælgætisneyslu barna sinna með því að hafa ákveðið skipulag á sætindaáti, t.d. með því að hafa sérstakan nammidag aðeins einu sinni í viku.
Við hvetjum því alla jólasveina til að gefa börnum frekar ávexti, t.d. epli, mandarínur eða vínber, eða lítil leikföng, bækur eða annað í staðinn fyrir sælgæti.

Með kveðju,

Starfsfólk Lýðheilsustöðvar

Sjá nánar um tannvernd á heimasíðu Lýðheilsustöðvar.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica