Sími : 5 800 900
Línuskautar, hlaupahjól og hlaupabretti

Línuskautar, hlaupahjól og hjólabretti

Deildu með öðrum Dreifðu um vefinn

Hér á landi slasast árlega fjöldi barna og unglinga þegar þau eru að leika sér á línuskautum, hlaupahjólum eða hjólabrettum.

Sum þessara slysa eru mjög alvarleg og önnur gífurlega kostnaðarsöm fyrir foreldra, t.d. vegna áverka á framtennur barna. Algengustu áverkarnir eru á handleggjum og í andliti.

Hvers konar öryggisbúnað á að nota?

Það er ákaflega mikilvægt að börn, unglingar og fullorðnir sem nota línuskauta, hlaupahjól eða hjólbretti noti hjálm. Til eru sérstakir hjálmar fyrir línuskauta og hjólabretti en hjólreiðahjálmurinn er hannaður þannig í dag að hægt er að nota hann á öll þessi farartæki. Ásamt hjálminum þarf að nota hlífar á olnboga, úlnliði og hné. Allur öryggisbúnaður skal vera CE merkið merktur.

Þegar barnið eldist koma stundum tímar sem það vill ekki nota hjálminn. Mjög mikilvægt er að foreldrar brýni fyrir börnum sínum hversu mikilvægt það er að nota hjálm þegar hjólað er eða þegar línuskautar, hlaupahjól og hjólabretti eru notuð. Foreldrar verða líka að sýna gott fordæmi og nota sjálfir hjálm þegar þeir nota eitthvað af ofantöldu. Börnin læra jú það sem fyrir þeim er haft. Standið því fast á ykkar og gefið ekki eftir með það að barnið noti hjálminn.

Víða erlendis hjá hjólabretta- og línuskautaklúbbum eru reglur um að skylt sé að nota hjálm við æfingar. Þar er líka boðið upp á námskeið þar sem kennd er tækni til að verja sig í falli með því að beita líkamanum á réttan hátt. Slík námskeið hafa ekki verið í boði hér á landi, en í framtíðinni er rétt að fara að huga að því.

Hvar er öruggt að vera?

Mikilvægt er að barnið sé ekki úti á götum á línuskautum, hlaupahjólum eða hjólabretti. Leyfilegt er að vera á gangstéttum, enda valdi það ekki gangandi vegfarendur óþægindum eða hættu. Alltaf skal víkja fyrir þeim sem eru gangandi. Finnið svæði þar sem enginn umferð er og undirlagið er slétt. Holur og steinar auka líkurnar á að barnið detti.  Þar sem hjólin eru smá, sérstaklega á línuskautum og hjólabrettum, er hætta á að þau festist í litlum rifum t.d. milli gangstéttahellna.  Ef barnið er á mikilli ferð þegar það dettur getur það hlotið mikla áverka.  Réttur öryggisbúnaður getur þá skipt sköpum.

Fram að 10-12 ára aldri er fjarlægðarskyn barna ekki fullþroskað þannig að barninu finnst hlutirnir vera lengra í burtu en þeir í rauninni eru.  Börn á þessum aldri hafa heldur ekki eins góða hliðarsýn og þeir sem eldri eru.  Heyrn barna yngri en 8 ára er ekki fullþroskuð og geta þau því ekki greint úr hvaða átt hljóð kemur.  Við 10 ára aldur hafa þau náð fullum jafnvægisþroska.  Það er því fyrst við 10 til 12 ára aldur sem þau hafa þroska til að meðtaka allt það sem fram fer í kringum þau þar sem þau eru að leik.  Hafið þetta í huga áður en þið leyfið barninu að fá línuskauta, hlaupahjól eða hjólabretti.

Ekki er æskilegt að vera á línuskautum, hlaupahjóli eða hjólabretti þegar dimma tekur á haustin.  Þá er rétt að ganga frá þessum farartækjum í geymsluna og bíða eftir að birti á ný. 

Línuskautarlinuskautar

Línuskautar hafa verið vinsælir meðal barna og fullorðinna hér á landi undanfarin ár.  Helstu ástæður slysa eru að skautarinn missir stjórn á skautunum, keyrir yfir eitthvað, fer of hratt miðað við aðstæður eða er að gera einhverjar kúnstir. Algengustu meiðslin eru á handleggjum.

Hvað er hægt að gera til að fyrirbyggja slys?

  • Veljið línuskauta sem henta aldri og getu barnsins.  Ef barnið er byrjandi er betra að velja línuskauta með 3 eða 4 hjólum.  Línuskautar með fimm hjólum er fyrir þá sem eru vanari og þá sem skauta lengri vegalengdir.  Hafið barnið með þegar línuskautarnir eru keyptir.
  • Farið reglulega yfir hjólin á línuskautunum og skoðið hvort þau eru slitin.
  • Skoðið hvort nokkuð séu grjót í hjólalegunum.
  • Athugið hvort hemlar séu í lagi.  Ekki er óeðlilegt að þurfa að skipta um þá öðru hvoru.
  • Brýnið fyrir barninu að nota alltaf viðeigandi öryggisbúnað s.s. hjálm og hlífar á olnboga, úlnliði og hné.  Þannig er hægt að koma í veg fyrir alvarlega áverka ef barnið dettur. 
  • Hjálmurinn þarf að passa vel á barnið og vera rétt festur.  Ekki á að vera hægt að hnika honum til nema örfáa millimetra á höfðinu.  Hjólreiðahjálmur hentar ágætlega fyrir barn á línuskautum, en annars er til sérstakur línuskautahjálmur með meiri vörn á hnakkanum, vegna þess hve oft línuskautarar detta aftur fyrir sig.
  • Ef barnið er að byrja að læra á línuskauta þarf að kenna því að nota hemlana rétt og að detta rétt.

Talsvert er um að krakkar séu að leika sér í "götuhokkí".  Leyfið börnunum ekki að vera á umferðargötum heldur einungis inn á lokuðu svæði.  Mikilvægt er að börnin noti réttan öryggisbúnað því mikil hætta er á að þau verði fyrir höggi frá hokkíkylfu.  Æskilegt er að notaðir séu mjúkir boltar frekar en harðir, þar sem harðir boltar geta valdið mjög alvarlegum áverkum, sérstaklega höfuðáverkum. 

Hlaupahjólhlaupahjol

Hlaupahjól hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár.  Á þeim er hægt að þeysa um og ná töluverðum hraða.  Börn hafa hlotið alvarlega innvortis áverka við það að detta á of lágt stillt handfang.  Ef handfangið er of hátt fyrir barnið getur það lent með andlitið á handfanginu og brotið tennur.

Hvað er hægt að gera til að fyrirbyggja slys?

  • Ekki er ráðlegt að leyfa barni yngra en 5 ára að vera á hlaupahjóli.
  • Mikilvægt er að stilla handfangið í rétta hæð.  Látið barnið standa á hjólinu, halda olnbogum að mittinu og handleggjum beint fram.  Stillið handfangið í þessari hæð og festið vel.
  • Farið reglulega yfir hjólin á hlaupahjólinu og skoðið hvort þau eru slitin. 
  • Herðið allar festingar reglulega.
  • Mikilvægt er að fara reglulega yfir hemlana, en ónýtir hemlar hafa oft átt þátt í slysum.
  • Barnið þarf að vera í góðum skóm með stömum botni, sem rennur ekki á hlaupahjólinu.
  • Brýnið fyrir barninu að nota alltaf viðeigandi öryggisbúnað s.s. hjálm og hlífar á olnboga, úlnliði og hné.  Þannig er hægt að koma í veg fyrir alvarlega áverka ef barnið dettur.  Hlífar á úlnliði geta valdið því að yngri börn eiga erfitt með að halda utan um handfangið.  Ef barnið nær ekki að halda utan um handfangið með úlnliðshlífina á sér er það einfaldlega of lítið til að vera á hlaupahjóli.  
  • Barnið á ekki að renna sér á hlaupahjóli niður brekkur.  Þar geta þau farið hratt og misst stjórn á hjólinu og dottið. 

Hjólabretti hjolabretti

Hjólabretti eru framleidd með mismunandi notkun í huga t.d. reil, funbox, ramp, Freestyle, Slalom eða hraða.  Ef hjólabrettið er notað á annan hátt en gefið er upp aukast líkurnar á slysi verulega. 

Hvað er hægt að gera til að fyrirbyggja slys?

  • Veljið hjólabretti sem hæfir aldri og þroska barnsins.  Til eru hjólabretti sem henta byrjendum.
    Mikilvægt er að vera á góðum skóm, með stömum botni.
  • Farið reglulega yfir hjól brettisins.  Athugið hvort grjót séu í hjólalegum. 
  • Ef hjólin eru slitin og ójöfn þarf að skipta um þau.  Illa farin hjól geta valdið falli, jafnt hjá byrjendum sem reyndum brettaiðkendum
  • Sandpappírsplatan sem staðið er á þarf að vera stöm.  Ef hún er það ekki þarf að skipta henni út.
  • Brýnið fyrir barninu að nota alltaf viðeigandi öryggisbúnað s.s. hjálm og hlífar á olnboga, úlnliði og hné.  Þannig er hægt að koma í veg fyrir alvarlega áverka ef barnið dettur. 

 

Hjólaskór (Heelys)

(tekið úr grein frá apríl 2008 um hjólaskó og notkun. Greinin í heild sinni.)

Hjólaskórnir komu fyrst á markaðinn í Bandaríkjunum árið 2000. Þeir eru mjög vinsælir og hafa selst í milljónatali um allan heim og er Ísland engin undantekning. Þegar vorið er á næsta leiti fer að bera meira á börnum sem nýta sér skóna og hafa gaman af. Hjólaskórnir líta út eins og venjulegir skór en undir hælnum er hjól sem gerir það að verkum að það er bæði hægt að ganga og renna sér á þeim. Skórnir geta flokkast undir línuskauta og skilgreinast þá sem íþrótt.

Það sem einnig gerir þessa skó öðruvísi en aðrar íþróttavörur er að þeir eru seldir bæði í venjulegum búðum og í íþróttabúðum, atriði sem gæti gert þá saklausari en þeir í raun og veru eru. Börn allt niður í 6 ára aldur renna sér á hjólaskónum.

Mikilvæg öryggisatriði

  • Læra undirstöðuatriðin vel með áherslu á hvernig á að stoppa
  • Alltaf að vera með öryggisbúnað: Hjálm, úlnliða-, olnboga- og hnéhlífar
  • Ekki renna þér innan um margmenni
  • Ekki renna þér í umferðinni. Ef þú þarft að fara yfir götu, farðu eftir umferðarreglum og ljósum
  • Veldu slétt undirlag til að renna þér á. Sneiddu hjá því að renna þér á grýttu undirlagi, á sandi eða í vatni
  • Ekki láta lítið barn vera á hjólaskónum án eftirlits

 

Hafa ber í huga að hjólin undir skónum geta ryðgað ef þau blotna. Það veitir meira viðnám og þar með eykst hættan á að detta. Einnig á grjót auðvelt með að festast í hjólunum og af þeim ástæðum ber að varast að vera á grýttum jarðvegi eða í sandi.

Leiðbeiningar um skyndihjálp á vef Rauða Kross Íslands.

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica