Útivistartími barna
Í barnaverndarlögum kemur fram að frá 1. september til 1. maí megi börn, 12 ára og yngri, ekki vera á almannafæri eftir kl. 20 nema í fylgd með fullorðnum. Börn á aldrinum 13 til 16 ára mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 22, nema þau séu á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Frá 1. maí til 1. september lengist útivistartíminn um tvær klukkustundir.
Á björtum sumarkvöldum getur verið erfitt fyrir foreldra að neita barninu um að vera lengur úti en útivistarreglurnar segja til um. Þeir reyna að réttlæta ákvörðun sína um lengri útiveru með því hve fá björt og falleg kvöld eru hér á Íslandi. Nægur nætursvefn er mikilvægur börnum og unglingum, hann er forsenda vellíðunar barnsins.
Foreldrar verða að hafa í huga að þegar barnið er búið að vera úti að leika sér allan daginn er þreytan farin að segja til sín. Barnið neitar því að vera þreytt því það vill flýta sér út að leika sér. Þreyta eykur líkurnar á slysum þar sem barnið á erfiðara með að bregðast við umhverfinu. Athyglin er verri, viðbragðsflýtirinn seinni og jafnvægið verra.
Það virðist vera sem foreldrar slaki á útivistarreglunum þegar barnið eldist. Við það getur hætta á áhættuhegðun barnsins aukist eins og t.d. fikt með áfengi eða aðra vímugjafa.
Forvarnahópurinn SAMAN lét útbúa segulspjöld með lögboðnum útivistarreglum fyrir börn og ungmenni, sem mynd er af hér á síðunni. Þessi segulspjöld hafa sveitarfélög í landinu keypt og sent til ákveðinna árganga í grunnskólanum. Foreldrum finnst hjálp í því að hafa þessar reglur við höndina og með því að smella á myndina fæst stór mynd af reglunum, sem hægt er að prenta út og hengja upp á viðeigandi stöðum.

