Sími : 5 800 900
Forvarnarmyndbönd

Passaðu börnin betur - Forvarnarmyndbönd

Velferðasjóður barna á Íslandi hefur ákveðið að styrkja gerð tíu upplýsinga- og fræðslumynda í því skyni að draga úr slysum barna.

Sjóðurinn fékk Lýðheilsustöð og Tryggingamiðstöðina til samstarfs um verkefnið og er við það miðað að vekja athygli foreldra og forráðamanna barna, sem eru yngri en fjögurra ára, á þeim slysahættum sem leynast víða á heimilum og í næsta umhverfi barna.

Heima-og frítímaslys á börnum á aldrinum 0-4 ára

Eftirfarandi tölur eru byggðar á rannsóknarverkefni Eiriks Brynjars Eiríkssonar ,læknanema, á heima- og frítímaslysum barna á aldrinum 0-4 ára árið 2003. Verkefnið var unnið vorið 2004.

Sótt voru gögn í Slysaskrá Íslands um heima og frítímaslys barna á aldrinum 0-4 ára sem skráð voru í grunninn árið 2003. Eingöngu voru notuð gögn sem skráð voru af slysadeild LSH.

Heildarfjöldi þeirra (0-4 ára) sem leitaði til slysadeildar LSH árið 2003 vegna heima- og frítímaslysa var 1392. Það var 75% allra slysa á börnum í aldurshópnum 0-4 ára.

Skoða myndband um drukknun.

Skoða myndband um köfnun.

Skoða myndband um eitrun.

Skoða myndband um fall.

Skoða myndband um bruna.

(vinsamlega sýnið þolinmæði meðan myndbandið niðurhleðst.)








Þetta vefsvæði byggir á Eplica