Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í kornvörum er fjöldi næringarefna sem eru mikilvæg fyrir heilsuna.Vítamín og steinefni eru aðallega í hýði og kími en í fínunnum kornvörum er búið að fjarlægja þessa hluta. Æskilegt er því að velja oftar heilkornavörur en fínunnar vörur.
Nýlega var greint frá niðurstöðum nýrra greininga á transfitusýrum í völdum matvælum á Íslandi. Lýðheilsustöð hefur í kjölfarið tekið saman smá fróðleik um transfitusýrur sem hægt er að skoða hér.
Koffín veldur útvíkkun æða, örari hjartslætti og auknu blóðflæði til allra líffæra. Einnig hefur koffín áhrif á öndun, meltingu og þvagmyndun. Mikil neysla á koffíni getur valdið höfuðverk (sem er líka fráhvarfseinkenni), svima, skjálfta, svefnleysi, hjartsláttartruflunum og kvíða.
Grein með ábendingum um mataræði barna og ungmenna sem stunda íþróttir.
Lesa meiraLýðheilsustöð hefur birt tölur um fæðuframboð á Íslandi fyrir árið 2007 hér á heimasíðunni. Þessar upplýsingar eru unnar reglulega og þótt þær veiti ekki upplýsingar um neyslu gefa þær vísbendingar um þróun á mataræði þjóðarinnar.
Lesa meiraMikilvægt er að halda tönnunum heilbrigðum og liður í því er að þekkja það sem hefur áhrif á tannheilsuna.Vatn er besti svaladrykkurinn, eins og allir vita, og óhætt er að drekka vel af því. Í vatni er engin orka og það er því ákjósanlegasti drykkurinn til að viðhalda vökvajafnvægi líkamans.
Lesa meiraflestum matvöruverslunum og nær öllum sjoppum landsins er mikið framboð af sælgæti. Þar eru alla jafna stórir sælgætisbarir sem fanga athyglina og börnin sem þangað koma horfa löngunaraugum á litadýrðina. Margir foreldrar reyna að stemma stigu við sælgætisneyslu barnanna með því að hafa ákveðið skipulag á sætindaáti, t.d. sérstakan nammidag aðeins einu sinni í viku.
Lesa meira
Lýðheilsustöð og Matvælastofnun hafa opnað vefsíðu með upplýsingum og fræðslu um helstu vítamín og steinefni: www.lydheilsustod.is/vitamin
Lesa meira
Rífleg neysla grænmetis og ávaxta virðist minnka líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, ýmsum tegundum krabbameina, sykursýki af gerð 2 og offitu. Hollusta þessara fæðutegunda er meðal annars fólgin í ríkulegu magni þeirra af vítamínum, steinefnum, trefjum og öðrum hollefnum. Áhrifin virðast meiri eftir því sem meira er borðað af mismunandi tegundum ávaxta og grænmetis en einstök efni í töfluformi hafa ekki sömu áhrif. Ráðleggingin 5 á dag eða 500 g af grænmeti og ávöxtum á dag er því enn í fullu gildi.
Lesa meiraMataræði er mikilvægur áhrifaþáttur á heilsu okkar og líðan og rétt að huga vel að því. Hluti þeirra matvæla sem við kaupum er samsettur úr mörgum hráefnum og því getur verið erfitt að átta sig nægilega vel á innihaldi þeirra. Framleiðendur matvæla fylgja reglum um merkingar til þess að neytandinn geti valið út frá því. Það reynir síðan á neytendur að nýta sér merkingarnar í erli dagsins við innkaup og matreiðslu. Lítum á nokkur atriði varðandi merkingar.
Lesa meira
Kominn er út á vegum Lýðheilsustöðvar bæklingurinn Ráðleggingar um mataræði og næringarefni. Ráðleggingarnar eru ætlaðar fullorðnum og börnum frá tveggja ára aldri og eiga þær að auðvelda fólki að velja fæði í samræmi við næringarefna- og orkuþörf sem og ráðlagða dagskammta af ýmsum vítamínum og steinefnum.
Lesa meira
Birtar hafa verið nýjar ráðleggingar um mataræði og næringarefni. Ráðleggingarnar eru endurskoðuð útgáfa fyrri manneldismarkmiða, þar sem tekið er mið af nýjum vísindarannsóknum á sviði næringar og heilsu og niðurstöðum könnunarinnar á mataræði Íslendinga 2002.
Lesa meiraFæðuhringurinn sýnir fæðuflokkana sex. Undirstaða holls mataræðis er að borða fjölbreyttan mat úr öllum fæðuflokkunum. Einnig er mikilvægt að borða margs konar mat úr hverjum flokki því hver fæðutegund hefur sína sérstöku samsetningu næringarefna.
Lesa meiraÍ hollustukörfunni er matur í samræmi við ráðleggingar Manneldisráðs um mataræði og næringarefni. Hér færð þú nánari upplýsingar um það hvað er í hollustukörfunni.
Lesa meira
Með reikniforritinu Matarvefurinn.is getur þú reiknað næringarefnin í matnum sem þú borðar og metið hollustu eigin fæðis. Matarvefurinn.is opnar nýja möguleika jafnt fyrir fyrir almenning og skólafólk að fylgjast með hollustu eigin mataræðis og fræðast um næringargildi fæðunnar. Vefurinn kemur sér einnig vel fyrir sykursjúka, íþróttafólk og aðra sem þurfa af einhverjum ástæðum að fylgjast vel með mataræðinu. Eins getur starfsfólk í matvælaiðnaði nýtt sér vefinn.
Lesa meira
Meðganga er tími breytinga í lífi hverrar konu. Daglegt líf snýst nú ekki aðeins um eigin þarfir heldur einnig um þarfir annars einstaklings. Heilsusamlegt mataræði og rétt meðhöndlun matvæla skiptir því sjaldan meira máli fyrir heilsu og líðan en einmitt á þessum tíma.
Nýlega kom út á vegum Lýðheilsustöðvar, Miðstöðvar mæðraverndar og Umhverfisstofnunar bæklingur þar sem fjallað er um helstu atriði sem vert er að hafa í huga, bæði varðandi undirbúning meðgöngu og lífshætti á sjálfri meðgöngunni.