Næringarefnatöflur
5. útgáfa, desember 2003
Miðað er við 100 g af ætum hluta matvæla, þ.e. án hýðis, beina o.þ.h. Næringarefnatöflunum er skipt upp eftir fæðuflokkum. Innan hvers flokks er fæðutegundum raðað í stafrófsröð þó getur skyldum fæðutegundum verið raðað saman til að auðvelda samanburð. Þú finnur t.d. upplýsingar um öll brauð með því að fletta upp á BRAUÐ í kornmatnum. Til að velja fæðu smellir þú á viðkomandi fæðuflokk. Fyrir hverja fæðutegund birtast fyrst upplýsingar um orku, orkuefni, trefjar og vatn en þú þarft að fara á næstu síðu til að sjá gildi fyrir vítamín og steinefni í sömu fæðutegund. Gildin í töflunum eru viðmiðunargildi því samsetning flestra matvæla getur verið breytileg. Þessar töflur byggja á upplýsingum úr Íslenska gagnagrunninum um efnainnihald matvæla (ÍSGEM).
Á heimasíðu Matís (www.matis.is/ISGEM/is) er hú á auðveldan hátt hægt að nálgast upplýsingar um efni sem eru í algengum matvælum. Upplýsingarnar eru í íslenska gagnagrunninum ÍSGEM og segja til um allt að 45 efni í um 900 fæðutegundum.
1. Mjólk og mjólkurvörur
2. Ostar
3. Ís
4. Kornmatur, brauð og kökur
5. Grænmeti og kartöflur
6. Ávextir, ber, hnetur og fræ
7. Kjöt, kjötvörur og fuglakjöt
8. Fiskur, fiskafurðir og skeldýr
9. Egg og eggjavörur
10. Feitmeti: smjör, smjörlíki, olíur o.fl.
11. Sykur, hunang og sælgæti
12. Drykkir, nema mjólkurdrykkir
13. Matarsalt, edik, ger, krydd og karftur
14. Snakk: poppkorn, flögur o.fl.
15. Sósur, súpur og áleggssalöt
16. Tilbúnir réttir
17. Fæðubótarefni, næringardrykkir, sérfæði
