Matarvefurinn.is
Hollustan reiknuð á Netinu
Með reikniforritinu Matarvefurinn.is getur þú reiknað næringarefnin í matnum sem þú borðar og metið hollustu eigin fæðis. Matarvefurinn.is opnar nýja möguleika jafnt fyrir fyrir almenning og skólafólk að fylgjast með hollustu eigin mataræðis og fræðast um næringargildi fæðunnar. Vefurinn kemur sér einnig vel fyrir sykursjúka, íþróttafólk og aðra sem þurfa af einhverjum ástæðum að fylgjast vel með mataræðinu. Eins getur starfsfólk í matvælaiðnaði nýtt sér vefinn.
Matís sér um uppfærslu á matarvefnum og ef fólk er með athugasemdir eða fyrirspurnir þá hafið samband við Ólaf Reykdal olafur.reykdal@matis.is
