Of þung börn - ráð til foreldra
Töfralausnirnar láta þó á sér standa, og svo mikið er víst að ekki er mælt með því að setja börn beinlínis í megrun eða fá þau til að fylgja ströngu mataræði, jafnvel þótt þau séu of þung. Börnin eru að vaxa og þroskast og þurfa til þess næga næringu. Það er heldur ekki hollt að börn verði of upptekin af eigin líkamsþyngd eða að alið sé á sektarkennd þeirra gagnvart mat með ströngum reglum um hollt mataræði. Það getur því verið vandrataður meðalvegurinn fyrir fjölskyldur barna sem eru of þung. Hér á eftir eru nokkur ráð sem foreldrar geta haft í huga til að bæta matarvenjurnar og auka hreyfingu barna sinna. Takist fjölskyldunni að tileinka sér þó ekki sé nema nokkur þeirra hefur mikið áunnist.
- Höfum reglu á máltíðum, þrjár aðalmáltíðir og tveir til þrír millibitar á dag henta fyrir börnin og er þá minni hætta á að seilst sé í óholla millibita.
- Gefum börnunum hollan morgunverð þá sækja þau síður í ruslfæði þegar líður á daginn.
- Sköpum rólegt andrúmsloft við matarborðið og fáum börnin til að gefa sér góðan tíma til að borða. Látum líða tíma áður en barnið fær ábót þá finna þau e.t.v. að þau eru orðin södd og þurfa ekki á ábótinni að halda.
- Kennum börnunum að skammta sér hæfilegt magn á diskinn.
- Eigum alltaf nóg úrval af girnilegu grænmeti og ávöxtum til á heimilinu og höfum það aðgengilegt. Þannig gerum við börnunum auðveldara með að grípa til þess ef þau verða svöng milli mála.
- Hvetjum börnin til að drekka vatn við þorsta, auk þess að bjóða þeim upp á vatn með matnum.
- Höfum sælgæti, kex, kökur og gosdrykki ekki aðgengilegt fyrir barnið á heimilinu dagsdaglega. Notum laugardaga og hátíðsdaga til að gera þeim dagamun. (Sjá grein um sykurneyslu barna).
- Hvetjum börnin til að hreyfa sig. Það hefur verið sýnt fram á að sú hreyfing sem stunduð er daglega eins og að ganga eða hjóla í skólann eða ganga upp tröppur í stað þess að taka lyftuna skilar árangri.
- Hvetjum börnin til að fara frekar út að leika sér en að setjast fyrir framan sjónvarpið. Þegar horft er á sjónvarp fylgir oft aukið nart og lokkandi auglýsingar geta aukið á neysluna og löngunina í mat eða sælgæti það er því gild ástæða til að draga úr sjónvarpsáhorfi barnanna.
- Hvetjum börnin til að taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi eða tómstundastarfi skólanna.
- Stundum hreyfingu og útivist með börnunum. Förum í göngu, á skíði, skauta, út að hjóla. Það hefur sýnt sig að aukin hreyfing foreldra leiðir til aukinnar hreyfingar barna.
- Foreldrar eru sem uppalendur og fyrirmyndir í lykilstöðu til að hafa áhrif á lifnaðarhætti barna sinna.
Það læra börnin sem fyrir þeim er haft – verum góð fyrirmynd
Hólmfríður Þorgeirsdóttir
verkfnisstjóri Lýðheilsustöð
