Sími : 5 800 900
Um tóbak

Vertu frjáls reyklaus - 9. bekkur

Námsefni í tóbakvörnum ætlað nemendum í 9. bekk grunnskóla. Hérna er hægt að prenta út logo_9.bekkeða skoða námsefnið í heild sinni, einstakar kennslustundir eða eitt og eitt verkefni. Þess má geta að fyrir nokkrum árum var möppum með námsefninu Vertu frjáls reyklaus, dreift í alla grunnskóla á Íslandi og ætti það því að vera til í flestum skólum. Á nokkrum stöðum í námsefninu er vitnað í glærur sem eru í þessum möppum. En uppfærðar og endurbættar glærur má nálgast neðst á þessari síður.

Námsefnispakkinn í heild

Hvað eiga nemendur að læra í 9. bekk?

Opna námsefnispakka
  • Að átta sig á og þróa frekar sínar eigin aðferðir til að velja áfram reykleysi.
  • Að mikill meirihluti fólks velur að reykja ekki.
  • Að það er erfiðara en margir halda að hætta að reykja.
  • Að lungnakrabbamein er bara ein af mörgum afdrifaríkum afleiðingum reykinga.
  • Að geta staðið andspænis reykingamönnum og látið heyra í sér þegar þeir koma með rökleysur og gera lítið úr hættunni.
  • Að geta staðist þá freistingu að prófa.
  • Að átta sig á því hvað vakir fyrir tóbaksframleiðendum með því að skoða hvernig þeir markaðssetja reykingar t.d. í Austur-Evrópu.
  • Að það má beita sömu brögðum og tóbaksframleiðendur til að berjast fyrir reykleysi.
  • Að brögð auglýsingaiðnaðarins geta nýst til að koma á framfæri hvaða boðskap sem er.
  • Að þeir geta notað sum þessara bragða er þeir reyna að hafa áhrif á 7. bekkinga/8. bekkinga.

Kennslustundir

  1. KENNSLUSTUND: Um útbreiðslu og ávanamyndun - Goðsagnir eða staðreyndir
  2. KENNSLUSTUND: Um áhrif langvarandi tóbaksneyslu - Goðsagnir eða staðreyndir
  3. KENNSLUSTUND: Er samt sem áður freistandi að prófa?
  4. KENNSLUSTUND: Hvernig tóbaksframleiðendurnir herða tökin
  5. KENNSLUSTUND: Til atlögu gegn tóbakinu - á þinn hátt

Verkefni

Glærur



Þetta vefsvæði byggir á Eplica