Sími : 5 800 900

Fréttir

Heilsuverndarstöðin hýsir nýju stofnunina - 2.9.2010 Lýðheilsustöð

Heilsuverndarstödin. smellið á mynd til að stækkaÁkveðið hefur verið að ganga til samninga við eigendur Heilsuverndarstöðvarinnar, Barónsstíg 47, um leigu á hluta af húsnæðinu fyrir nýja stofnun, sem verður til við sameiningu Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins.

Lesa meira
 

Vel heppnaðir starfsdagar - 19.8.2010 Lýðheilsustöð

Starfsdagar2010-075++

Að baki eru nú tveir afar vel heppnaðir starfsdagar sem Lýðheilsustöð gekkst fyrir um Heilsueflandi grunnskóla. Þátttakendur voru á þriðja hundrað frá meira en 30 skólum. Það var Víkurskóli í Grafarvogi sem hýsti starfsdaga Lýðheilsustöðvar af myndarskap og mikilli hjálpsemi.

Lesa meira
 

Starfsdagar fyrir heilsueflandi grunnskóla - 11.8.2010 Lýðheilsustöð

Skólamynd

Lýðheilsustöð gengst fyrir starfsdögum fyrir kennara og starfsfólk grunnskóla um heilsueflandi grunnskóla, dagana 17. og 18 ágúst n.k. í Víkurskóla í Grafarvogi.

Lesa meira
 

Bagg er bögg - Átak gegn munntóbaksnotkun - 5.8.2010 Tóbaksvarnir

bagg_er_bgg_allir

„Bagg er bögg“ er nýtt átaksverkefni Jafningjafræðslu Hins hússins, Knattspyrnusambands Íslands og Lýðheilsustöðvar til að sporna við aukinni munntóbaksnotkun hjá ungu fólki. Andlit átaksins eru Alfreð Finnbogason landsliðsmaður í knattspyrnu og Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu ásamt Rúnari Guðbjartssyni og Sigríði Ólafsdóttur.

Lesa meira
 

Götuhátíð Jafningjafræðslunnar - 14.7.2010 Lýðheilsustöð

Jafningjafraedslan_gotuhatid_2010_A

Jafningjafræðslan og stuðningsaðilar bjóða landsmönnum að fagna með sér sumrinu á götuhátíð á Austurvelli föstudaginn 16. júlí frá kl. 14:00. Þar mun fjöldi tónlistarmanna og listamanna stíga á stokk.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

SAMAN í sólinni í sumar - 2.7.2010 Lýðheilsustöð

Sumardagur_i_Nautholsvik

Foreldrar eru hvattir til að njóta sumarsins með börnunum sínum og unglingum og verja tímanum saman. Sumarið einkennist oft af útilegum, útihátíðum og sumarbústaðaferðum, en mikilvægt er að foreldrar hafi í huga að börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki erindi í slíkar ferðir eftirlitslaus. Söfnum góðum minningum í sumar - SAMAN í sólinni.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

Könnun á notkun vefsíðu Lýðheilsustöðvar - 29.6.2010 Lýðheilsustöð

Notendur vefsíðu Lýðheilsustöðvar gætu orðið varir við það á næstu vikum að gluggi birtist á síðunni þar sem þeir eru beðnir að svara nokkrum spurningum um vefsíðuna. Með þessari könnun er verið að búa í haginn til að gera vefsíðuna enn betri og bæta við efni sem notendum finnst vanta. Það væri Lýðheilsustöð mikils virði að sem flestir tækju þátt því þannig getum við sameiginlega mótað góðan og notadrjúgan vef til framtíðar.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

Samningur um landskönnun á mataræði Íslendinga - 22.6.2010 Næring og holdafar

-LHS_22Jun2010-002_1200

Undirritaður var í dag samstarfssamningur Lýðheilsustöðvar, Matvælastofnunar (MAST) og Rannsóknastofu í næringarfræði (RÍN) um framkvæmd Landskönnunar á mataræði Íslendinga.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

Ánægja með lög um að börnum sé bannað að fara í ljósbekki - 16.6.2010 Lýðheilsustöð

Verum klár í sólinni. Smellið á myndina til að stækka og prenta út.

Lýðheilsustöð lýsir yfir ánægju sinni með að lög um bann við ljósabekkjanotkun barna hafi náð fram að ganga. Stöðin hefur í samstarfi við fleiri unnið að því á undanförnum árum að vara við skaðlegum áhrifum sólargeisla á húðina, ekki síst barna.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 




Fréttir




Þetta vefsvæði byggir á Eplica