Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ákveðið hefur verið að ganga til samninga við eigendur Heilsuverndarstöðvarinnar, Barónsstíg 47, um leigu á hluta af húsnæðinu fyrir nýja stofnun, sem verður til við sameiningu Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins.
Að baki eru nú tveir afar vel heppnaðir starfsdagar sem Lýðheilsustöð gekkst fyrir um Heilsueflandi grunnskóla. Þátttakendur voru á þriðja hundrað frá meira en 30 skólum. Það var Víkurskóli í Grafarvogi sem hýsti starfsdaga Lýðheilsustöðvar af myndarskap og mikilli hjálpsemi.
Lesa meira
Lýðheilsustöð gengst fyrir starfsdögum fyrir kennara og starfsfólk grunnskóla um heilsueflandi grunnskóla, dagana 17. og 18 ágúst n.k. í Víkurskóla í Grafarvogi.
Lesa meira
Jafningjafræðslan og stuðningsaðilar bjóða landsmönnum að fagna með sér sumrinu á götuhátíð á Austurvelli föstudaginn 16. júlí frá kl. 14:00. Þar mun fjöldi tónlistarmanna og listamanna stíga á stokk.
Lesa meira