,,Hugsaðu áður en þú sendir" - Alþjóðlegi netöryggisdagurinn
Í tilefni af alþjóðlega netöryggisdeginu, 9. febrúar, verður haldið opið málþing undir yfirskriftinni ,,Hugsaðu áður en þú sendir" í Skriðu, aðalbyggingu menntavísindasviðs HÍ, við Stakkahlíð. Þar munu bæði sérfræðingar og talsmenn ungs fólks munu fjalla um örugga netnotkun út frá ýmsum sjónarhornum, undir styrkri stjórn Páls Óskars Hjálmtýssonar. Þingið er á vegum SAFT-verkefnisins sem Lýðheilsustöð er virkur þátttakandi í.
SAFT-verkefnið er hluti af Evrópsku samstarfsneti og í fyrra var Alþjóðlega netöryggisdeginum fagnað með yfir 500 viðburðum í um 50 löndum heims.
Dagskrá
kl. 14:30-16:30
-
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, setur málþingið
-
Hrannar Pétursson, forstöðumaður almennatengsla hjá Vodafone: „Ringulreiðarmálið" - Myndbirtingar barna og unglinga á netinu. Hvað segja netþjónustuaðilar?
-
Einar Norðfjörð og Anna Kristína Lobers, ungmennaráði SAFT: Reynsluheimur unga fólksins: Vinasöfnun og myndbirtingar á félagsnetsíðum
-
Halldór J. Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi: Friðhelgi á jaðri netsins
-
Jónas Kristjánsson, ritstjóri: Þolmörkin færðust til
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir, lektor í upplýsingatækni og tölvunotkun í námi og kennslu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands: Netsiðferði - Persónuvernd og pólitískur áróður
-
Sólveig Jakobsdóttir, Rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun, Menntavísindasviði Háskóla Íslands: Félagsnet í fræðilegu samhengi: Rafræn tengsl og persónusköpun ungs fólks á netinu
-
Sigríður J. Hjaltested, aðstoðarsaksóknari, Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu: Rannsókn mála tengd netinu
-
Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla, og Emil Einarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Nýherja, veita verðlaun í nemendasamkeppni um gerð jafningjafræðsluefnis um jákvæða og örugga netnotkun
- Pallborðsumræður
Veitingar
Málþingið verður sent beint út á netinu.
