Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Hreyfing fyrir alla - verkefnið er hafið

9.2.2007

Hreyfing fyrir alla er samstarfsverkefni heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, Lýðheilsustöðvar og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem fara mun fram í nokkrum sveitarfélögum í landinu með það að markmiði að fá fleiri til að hreyfa sig reglulega.

Hreyfing_fyrir_alla,_undirritun. smella á mynd til að stækkaÍ dag fór fram undirritun samstarfssamninga um verkefnið í höfuðstöðvum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í Laugardal en verkefnið er unnið í samvinnu við Reykjavíkurborg, Akureyrarbæ, Hafnarfjarðarbæ, Mosfellsbæ, Ungmennafélagið Breiðablik í samstarfi við Kópavogsbæ, Héraðssamband Vestfirðinga og Héraðssamband Bolungarvíkur í samstarfi við Ísafjarðarbæ, Bolungarvíkurkaupstað og Súðavíkurhrepp. Heilsugæsla, íþróttafélög og aðrir hagsmunaaðilar koma einnig að framkvæmd verkefnisins í viðkomandi sveitarfélögum. Stéttarfélögin VR og Efling veita verkefninu stuðning, sem og fleiri aðilar.

Vonir standa til að verkefnið geti náð til allt að 2/3 hluta landsmanna og hafa rúmlega 13 milljónir króna þegar verið tryggðar til að hleypa því af stokkunum. Tilgangur verkefnisins Hreyfing fyrir alla er, eins og nafnið gefur til kynna, að skipulögð hreyfing standi til boða fólki sem til þessa hefur ekki verið að stunda reglulega hreyfingu, kannski vegna þess að ekki hefur boðist nein slík við hæfi. Verkefnið er unnið í samstarfi við sveitarfélög, heilsugæslu og íþróttafélög og er ætlað að höfða til ólíkra hópa.

Samkomulagið undirrituðu, auk heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, Ólafur Rafnsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Björn Ingi Hrafnsson, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, Margrét Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri, Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, Sigurrós Þorgrímsdóttir, formaður Breiðabliks, Jón Páll Hreinsson, fyrir hönd HSV og HSB, Stefanía Magnúsdóttir, varaformaður VR, og Sigurður Bessason, formaður Eflingar.

Aldrei of seint að breyta um lífsstíl

„Það er aldrei of seint að breyta um lífsstíl en hreyfingarleysi er einn af helstu orsakavöldum lífstílstengdra sjúkdóma eins og ofþyngdar, aukins kólesteróls og hækkaðs blóðþrýstings, ásamt reykingum, áfengis- og vímuefnaneyslu og óhollu mataræði. Allt eru þetta þættir sem við getum tekið á sjálf og bætt þannig heilsu okkar," sagði Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, þegar samstarfsverkefnið var undirritað í dag.
Athafnir voru látnar fylgja orðum í Laugardalnum því áður en samstarfssamningurinn var undirritaður var fulltrúum þátttakenda í verkefninu sýnt hvernig á að bera sig að í stafagöngu – almenningsíþrótt sem nýtur vaxandi vinsælda hérlendis og hentar fólki á öllum aldri.

Eldri frétt um verkefnið



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica