Könnun á heilsu og líðan Íslendinga árið 2007
Reglubundnar rannsóknir á heilsu og heilsutengdum lífsháttum eru undirstaða lýðheilsustarfs. Markmið könnunarinnar er að fá nákvæma mynd af heilsu og líðan Íslendinga eftir búsetu og bakgrunni þeirra. Rannsókninni er ætlað að auka skilning á orsakaþáttum lífstílstengdra sjúkdóma á Íslandi. Stuðst er við viðurkennda staðlaða mælikvarða á heilsu og heilsusamlega lífshætti auk sérsniðinna mælinga. Áhersla er lögð á að mæla atriði sem töluleg gögn íslenska heilbrigðiskerfisins og Hagstofu Íslands ná ekki yfir. Niðurstöðurnar munu verða grunnur að aukinni þekkingu á útbreiðslu sjúkdóma og sjúkdómseinkenna og þannig nýtast í stefnumótun, alþjóðlegum samanburði og fræðastarfi. Niðurstöðurnar verða notaðar til að styrkja samstarf Lýðheilsustöðvar við sveitarfélög í landinu með því að greina aðstæður, hegðun, líðan og sjúkdóma fólks eftir búsetu.
Þátttakendur
Fyllsta trúnaðar verður gætt við úrvinnslu gagna þannig að svör og niðurstöður verða ekki rakin til einstaklinga. Því er það von þeirra sem standa að könnuninni að þeir sem beðnir eru um að taka þátt gefi sér tíma til að svara spurningunum og leggi leggi þannig góðu málefni lið.
Meginmarkmið með rannsókninni eru í stuttu máli eftirfarandi:
- Að afla upplýsinga um heilsu, líðan, lífsgæði og sjúkdóma fólks, svo og um helstu áhrifaþætti heilbrigðis, þ.e. lífshætti, aðstæður og lífsskilyrði. Áhersla verður lögð á þá þætti sem töluleg gögn heilbrigðiskerfis og Hagstofu ná ekki til.
- Auka skilning á orsakaþáttum lífstílstengdra sjúkdóma og einkenna.
- Leggja mat á umfang og dreifingu heilsusamlegra og óheilsusamlegra lífshátta.
- Fylgjast með breytingum á umhverfi, aðstæðum og hegðun fólks sem hefur áhrif á heilsu.
- Afla gagna um heilsu, heilsuógnanir og líðan fólks sem nýtast stjórnvöldum í stefnumótun, verkefna- og áætlanagerð. Sérstök áhersla verður lögð á að meta jafnræði fólks og einstakra hópa þegar heilsa, lífsskilyrði og heilsutengdir þættir eru annars vegar.
- Leggja mat á árangur heilsueflingar og forvarnaverkefna á vegum Lýðheilsustöðvar og annarra stofnanna.
- Leggja mat á samfélagslegan kostnað sjúkdóma og skertra lífsgæða.
- Leggja mat á þörf fyrir nákvæmari rannsóknir á tilteknum sjúkdómum og heilsuvá.
- Vera grunnur að kerfisbundnum rannsóknum á þróun heilsu í framtíðinni.
- Skapa undirstöðu og almenna viðmiðun fyrir rannsóknir vísindasamfélagsins í heilbrigðismálum.
- Leggja til upplýsingar í formi hlutfallstalna í samanburðarrannsóknir fjölþjóðlegra stofnana eins og Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu, Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar og Evrópusambandsins.
