Kynning á fyrstu niðurstöðum könnunar á heilsufari Íslendinga - Sól og sólbruni -
Lýðheilsustöð og samstarfsaðilar kynntu fyrstu niðurstöður könnunarinnar Heilsa og líðan Íslendinga 2007 þriðjudaginn 13. maí kl 15:00 í húsnæði Sundlauganna í Laugardal.
Heilsa og líðan Íslendinga 2007 er ein umfangsmesta póstkönnun sem gerð hefur verið á Íslandi en henni var stýrt frá Lýðheilsustöð í samvinnu við sérfræðinga frá Kennaraháskóla Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, Háskólanum á Akureyri, Landlæknisembættinu, Vinnueftirlitinu og Krabbameinsfélagi Íslands.
Markmið rannsóknarinnar er að afla upplýsinga um heilsu, líðan, lífsgæði og sjúkdóma fólks á Íslandi, svo og um helstu áhrifaþætti heilbrigðis, þ.e. lífshætti, aðstæður og lífsskilyrði.
Áhersla var lögð á að mæla þætti sem töluleg gögn íslenska heilbrigðiskerfisins og Hagstofu Íslands ná ekki yfir. Rannsókninni er ætlað að vera grunnur að reglubundnum mælingum á heilsu, líðan og lífsgæðum fólks á Íslandi. Gögn rannsóknarinnar verða nýtt bæði af háskólasamfélaginu og opinberum aðilum, m.a. til stefnumótunar til að skapa landsmönnum tækifæri til að heilbrigðs lífs.
Aðstandendur rannsóknarinnar þakka sérstaklega þeim fjölmörgu Íslendingum sem svöruðu heimsendum spurningalista fyrir ómetanlegt framlag.
Fyrsta kynning
Í upphafi sumars er við hæfi að kynna niðurstöður um sólböð og sólbruna meðal Íslendinga en sólargeislun er vel þekktur orsakavaldur krabbameina.
Tengill í eldri frétt um rannsóknina.

