Skóli og lýðheilsa - fyrirlestrar komnir á vefinn
Lýðheilsustöð stóð fyrir ráðstefnunni Skóli og lýðheilsa 9. maí s.l. og voru þátttakendur nærri 200 að tölu. Nú hafa fyrirlestrar og erindi frá ráðstefnunni verið sett á hér á vefsíðu Lýðheilsustöðvar.Margir þátttakenda lýstu yfir ánægju sinni með ráðstefnuna og þakkar Lýðheilsustöð fyrir það. Aðrir nefndu atriði sem þeir hefðu viljað sjá í dagskránni, s.s. umfjöllun um leikskóla, foreldra og fleira. Lýðheilsustöð stefnir að því að ráðstefna um skóla og heilsu verði árlegur viðburður og því hægt að fjalla um alla helstu þætti sem þetta mál varðar á næstu árum.
