Fermingarbörn ættu ekki að fara í ljós
Nú þegar fermingar fara í hönd hefst átak sem beinist að fermingarbörnum og foreldrum eða forráðamönnum þeirra þar sem bent er á hættuna sem fylgir því að ungt fólk fari í ljósabekki.Skilaboðin eru frá Félagi íslenskra húðlækna, Geislavörnum ríkisins, Krabbameinsfélaginu, Landlæknisembættinu og Lýðheilsustöð.
Þetta er sjötta árið sem farið er í fræðsluherferð undir slagorðinu ,,Hættan er ljós". Birtar verða auglýsingar á vefsíðum, ma. Facebook, og fjallað um málið í fjölmiðlum. Vakin er athygli á því að börn og unglingar eru næmari en aðrir fyrir skaðlegum áhrifum geislunar frá ljósabekkjum og sól.
Tíðni húðkrabbameins hefur aukist mikið á síðustu árum, einkum tíðni svonefndra sortuæxla, en þau eru alvarlegasta tegund húðkrabbameins og algengasta tegund krabbameins hjá konum á aldrinum frá 15 til 34 ára. Foreldrar og forráðamenn fermingarbarna eru hvattir til að hafa í huga tilmæli alþjóðastofnana um að börn og unglingar fari ekki í ljósabekki.
Leitað verður til presta landsins um að leggja málefninu lið, eins og undanfarin ár. Í kjölfar fræðsluherferðanna síðustu ár hefur dregið úr ljósabekkjanotkun og nokkrar sveitarstjórnir hafa hætt að bjóða upp á sólböð í ljósabekkjum í íþróttamannvirkjum sínum. Með herferðinni er stefnt að því að draga enn frekar úr ljósabekkjanotkuninni með því að minna á hættuna.
Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins greinast að meðaltali um 50 manns á ári með sortuæxli í húð, um 55 með önnur húðæxli og um 225 manns með svonefnd grunnfrumuæxli í húð. Tíðni húðæxla í heild hefur tvöfaldast á síðustu tíu árum. Ár hvert deyja að meðaltali átta Íslendingar úr sortuæxlum í húð.
