Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Viðurkenning fyrir heilsueflingu á vinnustað

27.3.2009

Heil og sæl í vinnunni. smellið á merkið til að opna heimasíðu.Heilsueflingarverkefnið Heil og sæl í vinnunni, sem Lýðheilsustöð og Vinnueftirlitið standa að, veitti fjórum fyrirtækjum/skólum viðurkenningu sem fyrirmyndarvinnustaðir, þ.e. Actavis, leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði, Íslandspósti og Snælandsskóla í Kópavogi.

Snælandskóla veitt viðurkenning. Smellið á mynd til að stækka. Verkefnið Heil og sæl í vinnunni er sam-evrópskt verkefni, ,,Move Europe", sem stóð yfir allt árið 2008 með þátttöku 70 vinnustaða. Markmið þess er að efla heilsu og forvarnir á vinnustöðum, með áherslu á hreyfingu, heilsusamlega næringu, streituvarnir, tóbaksvarnir og áfengis- og vímuefnavarnir.
Vinnueftirlit ríkisins hefur haft umsjón með verkefninu en unnið það í nánu samstarfi við Lýðheilsustöð og það voru þeir Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins, og Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustöðvar, sem veittu viðurkenningarnar.

Actavis Íslandspóstur Lyngholt
Actavis veitt viðurkenning. Smella á mynd til að stækka. Íslandspósti veitt viðurkenning. Smellið á myndina til að stækka.  Leikskólanum Lyngholti veitt viðurkenning. Smellið á myndina til að stækka.  


Hér á eftir er umsögn um fyrirmyndarvinnustaðina:

Góðar fyrirmyndir í heilsueflingu á vinnustöðum

Actavis

Actavis er fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu samheitalyfja. Fyrirtækið starfar í yfir 40 löndum en höfuðstöðvarnar eru á Íslandi. Starfsmenn á Íslandi eru 617 með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Actavis er fyrirmyndardæmi um stóran vinnustað sem vinnur að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsueflingu á kerfisbundinn máta og byggir aðgerðaáætlanir sínar í heilsueflingu á nákvæmum greiningum og viðheldur stöðugri framþróun.

Lyngholt – Fjarðarbyggð

Lyngholt er fjögurra deilda leikskóli sem starfar í anda hugmynda Howards Gardner um fjölgreind. Á leikskólanum eru börn frá aldrinum 1- 6 ára og starfsmenn eru 26. Allir geta eitthvað, enginn getur allt eru einkunnarorð skólans og leiðarljós þeirra í öllu starfi er að hver og einn fái notið sinna styrkleika því þannig byggist upp sjálfsmyndin. Lyngholt er fyrirmyndardæmi um lítinn vinnustað sem vinnur að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsueflingu án þess að það hafi mikil fjárútlát í för með sér. Stofnaður var lýðheilsuhópur og markmið hans er að skoða allt starf leikskólans út frá heilsusjónarmiðum. Eftirfarandi sýnishorn eru dæmi um stefnu og aðgerðir tengd verkefninu.

Íslandspóstur

Hjá Íslandspósti starfa um 1200 starfsmenn víðs vegar um landið og því um stóran hóp að ræða þótt starfsstöðvar séu misstórar. Vegna fjölbreyttra starfa innan fyrirtækisins eru vinnuaðstæður fólks mjög ólíkar. Íslandspóstur er fyrirmyndardæmi um stóran, dreifðan og fjölbreyttan vinnustað sem leggur sig fram um að koma til móts við mismunandi þarfir starfsmanna og taka tillit til ólíkra starfsstöðva. Heilsuefling er ekki ný af nálinni hjá þessu fyrirtæki heldur er um áframhaldandi góða vinnu að ræða.

Snælandsskóli

Í Snælandsskóla eru 73 starfmenn og nemendur eru 435. Til fyrirmyndar er þegar heildræn sýn á heilsueflingu í skóla nær bæði til nemenda og starfsmanna skólans enda er skóli einnig “vinnustaður” barnanna. Heilsuefling á nokkra sögu í Snælandsskóla og má meðal annars benda á að þau tóku þátt í þróunarverkefninu ,,Heilbrigð sál í hraustum líkama”. Þetta sýnir jafnframt að þó að vinnustaður sé með ákveðin verkefni í gangi útilokar það ekki að taka upp fleiri verkefni og nýta þar með samlegðaráhrif.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica