Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Nýr forstjóri Lýðheilsustöðvar

22.1.2010

Margrét Björnsdóttir. Smellið á mynd til að stækka

Heilbrigðisráðherra hefur sett Margréti Björnsdóttur, hjúkrunarfræðing, forstjóra Lýðheilsustöðvar frá 1. janúar til 31. ágúst 2010 en hún hefur verið starfandi forstjóri frá 9. nóvember sl. í orlofi fyrrverandi forstjóra. Margrét hefur undanfarin ár starfað í heilbrigðisráðuneytinu sem deildarstjóri og skrifstofustjóri á sviði stefnumótunar heilbrigðismála í ráðuneytinu.

Margrét hefur lokið meistaranámi í hjúkrunarfræðum, með áherslu á stjórnun, frá Háskóla Íslands. Áður hafði hún lokið þverfaglegu framhaldsnámi í stjórnun heilbrigðisþjónustu og rannsóknum við Háskólann í Linköping, Svíþjóð, auk náms í uppeldis- og kennslufræðum til kennsluréttinda og B.Sc. náms í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. 

 

Margrét var aðjúnkt við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands á árunum 2005 -2007 og hefur verið stundakennari þar frá 1985, auk þess að gegna störfum í heilbrigðsráðuneytinu frá árinu 1999, fyrst sem deildarstjóri á skrifstofu sjúkrahúsa- og heilsugæslumála og síðar skrifstofu áætlana- og þróunarmála og loks fyrrnefndu skrifstofustjórastarfi. Áður hafði hún m.a. starfað við hjúkrun á sjúkrahúsum bæði á Íslandi og í Svíþjóð og gegnt starfi sviðsstjóra lyflækninga- og endurhæfingasviðs Sjúkrahúss Reykjavíkur.

 

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica