Ánægja með lög um að börnum sé bannað að fara í ljósbekki
Lýðheilsustöð lýsir yfir ánægju sinni með að lög um bann við ljósabekkjanotkun barna hafi náð fram að ganga. Stöðin hefur í samstarfi við fleiri unnið að því á undanförnum árum að vara við skaðlegum áhrifum sólargeisla á húðina, ekki síst barna.
Félag íslenskra húðlækna, Geislavarnir ríkisins, Krabbameinsfélagið, Landlæknisembættið og Lýðheilsustöð hafa á undanförnum árum staðið fyrir átakinu „Hættan er ljós“ þar sem vakin hefur verið athygli á málinu. Einnig staðið fyrir skoðanakönnunum á viðhorfum fólks til málsins og komið á framfæri ýmissi fræðslu um skaðsemi þess að fara óvarlega í sólinni, nota ljósabekki í óhófi eða leyfa börnum að fara í slík tæki.
Með hagsmuni og heilsu landsmanna í huga eru samstarfsaðilarnir því að vonum ánægðir með nýju lögin.
Tengt efni:
Frétt heilbrigðisráðuneytisins
Ungt fólk á ekki að fara í ljósabekki
Sortuæxli í húð – fræðslurit Krabbameinsfélagsins
