Allt hefur áhrif
Allt hefur áhrif – einkum við sjálf! Niðurstöður frá samráðsfundi
Þátttakendur á samráðsfundinum voru rúmlega 100 og þarf af yfir 20 ungmenni. Samráðsfundurinn fór fram á Hótel Nordica föstudaginn 27. janúar en Allt hefur áhrif-verkefnið, sem hefur það að markmiði efla og bæta næringu og hreyfingu barna og ungmenna sem og fjölskyldunnar í heild, hófst formlega haustið 2005 en þá hafði Lýðheilsustöð unnið að undirbúningi þess frá árinu 2004, m.a. með því að fá sveitarfélög um allt land til samstarfs.
|
Auk fulltrúa frá þátttakandi sveitarfélögum var ýmsum fleiri boðið að hlusta á kynningu Jórlaugar Heimisdóttur, verkefnisstjóra Allt hefur áhrif, á því hvernig verkefnið hefur gengið fram til þessa. Einnig til að hlusta á kynningu á niðurstöðum stöðumats sem gert var við upphaf verkefnisins á aðstæðum og hjá íbúum í sveitarfélögunum sem taka þátt.
Gefnar hafa verið út skýrslur um þessa vinnu, sem þátttakandi sveitarfélög fengu til eignar. Einnig skýrsla um aðstæður í hverju og einu sveitarfélagi, sem stýrihópar í sveitarfélögunum munu nýta sér við gerð aðgerðaráætlunar sveitarféalgisins.
Verkefnisstjóri Allt hefur áhrif hefur á undanförnum vikum verið á ferð um landið og heimsótt þátttökusveitarfélögin og þá um leið afhent og farið yfir stöðumatsskýrslu sveitarfélagsins. Þegar hafa sveitarfélög á Norðurlandi verið heimsótt en á næstunni verður verkefnisstjórinn á ferð um Vestfirði, síðan Suð-Austurlandi, Suðurlandi og Vestmannaeyjum.
Áhrifanna þegar farið að gæta
Á fundinum kom m.a. fram að í mörgum sveitarfélögum er verkefnið komið ágætlega af stað. Áhrifa þess, sem og vegna umræðna um málefni því tengst, farið að gæta í sveitarfélögunum og víðar í samfélaginu. Má þar t.d. benda á afar lofsvert framtak verslunarinnar Vöruvals í Vestmannaeyjum sem hefur verið að bjóða afslátt af hollustuvöru – sem líta má á sem gott mótvægi við afsláttinn sem víða er boðinn af ,,nammibörum” um helgar.
Í þessu verkefni – og starfi Lýðheilsustöðvar að næringarmálum – er m.a. lögð áhersla á að auka neyslu grænmetis og ávaxta og í því sambandi notað kjörorðið ,,5 á dag”. Í nokkrum sveitarfélögum eru sérstakir ávaxtatímar í skólum þar sem börnunum eru boðnir niðurskornir ávextir í morgunhléi. Hvað varðar hvatningu til neyslu meira grænmetis og ávaxta er gaman að sjá gott framtak verslunarinnar Nóatúns sem hvetur fólk, á einkar skemmtilegan hátt, til að borða ,,5 á dag”.
Til að hvetja til meiri hreyfingar er í sumum sveitarfélögum orðið ókeypis í sundlaugar fyrir börn og í nokkrum sveitarfélögum eru íþróttaæfingar niðurgreiddar.
|
Bæklingur Stöðvar- og Fáskrðusfjarðar |
Bæklingur Grýtubakkahrepps Skoða bls. 1-4 Skoða bls. 2-3 |
5 á dag Nóatún |
|---|---|---|
|
![]() |
![]() |
Hvernig eru aðstæður í sveitarfélögunum við upphaf verkefnisins?
Í hverju sveitarfélagi hefur verið unnið mjög gott starf sem snýr að velferð barna. En til að fá mynd á þá vinnu, við upphaf verkefnisins, voru sendir spurningalistar til allra grunnskólastjóra og leikskólastjóra m.a. til að kanna aðbúnað, stefnu og starf í skólunum. Foreldrum allra 11 ára barna í landinu voru sendar spurningar þar sem verið var að kanna viðhorf þeirra og mat á lífsháttum og líðan barna sinna. Jafnframt voru lagðar spurningar fyrir nemendur í 6., 8. og 10. bekk til að fá þeirra viðhorf á hagi sína og lifnaðarhætti.
Á fundinum kynntu þau Laufey Steingrímsdóttir og Stefán Hrafn Jónsson, frá rannsóknasviði Lýðheilsustöðvar, fyrstu niðurstöður stöðumatsins og þar kom margt forvitnilegt í ljós, ekki síst þegar borin voru saman svör barnanna við svör foreldranna. Einnig voru kynntar sérstaklega niðurstöður svara frá leik- og grunnskólastjórum.
Niðurstöður vinnuhópa
Á samráðsfundinum unnu fulltrúar þátttökusveitarfélaganna í vinnuhópum og veltu fyrir sér lausnum á hugsanlegum aðstæðum í sveitarfélögum, sem annað hvort þyrftu að vera til staðar eða þyrfti að efla, til að sem best væri búið að börnunum og fjölskyldum þeirra hvað varðar bætta næringu og hreyfingu. Sérstök áhersla var lögð á að fá þarna viðhorf unga fólksins og því var um 20 ungmennum boðið til þátttöku og þóttu þau koma með skemmtilega sýn á ýmis atriði. Ætlunin er svo að nýta eftir þörfum niðurstöður þessarar hópavinnu á komandi misserum.
![]() |
![]() |
![]() |
Upplýsingar og hvatning til landsmanna
Landsmenn hafa væntanlega orðið varir við þetta verkefni í gegnum létt og skemmtileg skilaboð í formi
sjónvarpsauglýsinga og veggspjalda sem væntanlega hanga uppi víða, a.m.k. í þátttökusveitarfélögunum sem og á ýmsum stórum vinnustöðum. Þess má geta að þeir sem áhuga hafa geta pantað veggspjöldin hjá Lýðheilsustöð og eru þau ókeypis.







