Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Viltu fyrirbyggja slys vegna trampólína?

3.5.2005

Alvarleg slys geta orðið þegar að börn eru að nota trampólín. Má þar nefna hálsbrot sem leiðir til lömunar, beinbrot af ýmsum gerðum og höfuðáverka. Mikið er um minniháttar slys eins og tannáverka og tognanir. Ekki er vitað um alvarleg slys hér á landi en búast má við fleiri slysum með aukinni notkun trampólína

Foreldrar og forráðamenn eru því hvattir til að kynna sér vel þær leiðbeiningar sem fylgja með tarampólínunum þegar þau eru keypt. Til dæmis þarf að athuga svæðið í kringum tækið og að það sé ekki staðsett undir þakskegg eða tré. Gætið þessa að kaupa ekki of stórt trampólín fyrir barnið.

Mikil slysahætta myndast ef fleira en eitt barn er í tækinu í einu og þau eftirlitslaus.

Hægt er að kynna sér frekar um öryggi og trampólín hér. Einnig er að finna frekari upplýsingar um notkun Trampólína á heimasíðu Löggildingarstofu.

Herdís L. Storgaard

Verkefnastjóri barnaslysavarna Árvekni



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica