Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Ný reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim.

21.1.2003

Fyrir tæpum tveimur árum fóru formaður og framkvæmdastjóri Árvekni, ásamt tveimur stjórnarmönnum á fund umhverfisráðherra. Á fundinum var rætt um tíð slys á börnum á skipulögðum leiksvæðum barna og bent var leiðir til úrbóta. 

Á fundinum kom í ljós að besta leiðin til að fækka þessum slysum væri að gefa út reglugerð þar sem hægt væri að finna helstu atriði sem hafa þarf í huga við skipulag og eftirlit með opinberum leiksvæðum. Reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim var samþykkt í desember 2002.

Við hjá Árvekni fögnum því að reglugerðin skuli vera orðin að veruleika og þökkum Siv Friðleifsdóttur fyrir hennar skilning á málinu.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica