Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Ábending til foreldra: kveikjarar eru ekki leikföng

12.11.2002

Nýverið barst ábending frá foreldri þess efnis að verið væri að selja ungum börnum kveikjara. Um var að ræða 8 ára gamalt barn sem hafði keypt kveikjara og komið með hann heim. Foreldrið var ósátt við að barnið hefði fengið að kaupa kveikjarann án nokkurra athugasemda.

Við nánari skoðun á þessu máli kemur í ljós að ekki eru til reglur um slíka sölu og er börnum í raun heimilt að kaupa kveikjara á hvaða aldri sem er.

Mikilvægt er að verslunareigendur setji sjálfir reglur um sölu kveikjara sem heimili ekki börnum að kaupa þá. Til dæmis mætti miða við sölualdur tóbaks sem eru 18 ár.

Hvað varðar foreldra verða þeir að fylgjast vel með því að börn séu ekki að kaupa kveikjara eða almennt að fikta með eld. Börn gera sér ekki grein fyrir þeim afleiðingum sem fikt með eld getur haft í för með sér.

Herdís L. Storgaard
- framkvæmdastjóri Árvekni-

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica