Ef barn liggur eða hálf liggur útaf og lendir í árekstri er meiri hætta á áverka á höfuð og háls. Því uppréttara sem barnið situr þeim mun betra. Ef nauðsynlegt er að flytja ungbarn útafliggjandi í bíl á að nota barnavagnskörfu eða burðarrúm með hörðum hliðum og láta höfuð barnsins snúa að miðju aftursætisins. Burðarrúm verður að vera vel fest í bílnum með sérstökum beltum sem fest eru við þriggja punkta belti bílsins. Barnið verður einnig að vera fest í belti í burðarrúminu. Í árekstri dugar ekki að hafa einungis net strengt yfir burðarrúmið. Lítið barn getur kastast til í burðarúmi og hlotið alvarlega áverka ef það er ekki fest með beltum. Nýfædd börn, mjög lítil börn eða fyrirburar geta orðið þreytt í löngum bílferðum. Til að koma í veg fyrir það er besta ráðið að stoppa oft, taka barnið úr stólnum og halda á því eða láta það liggja útaf smá stund, í stað þess að nota burðarrúm.
Þessum ábendingum viljum við Margrét Sæmundsdóttir fræðslufulltrúi Umferðarráði, Herdís Storgaard framkvæmdastjóri Árvekni og Katrín Davíðsdóttir barnalæknir Miðstöð heilsuverndar barna, koma á framfæri af gefnu tilefni.
Senda grein