Átta augnslys um áramótin vegna skotelda - þar af 4 alvarleg
Fyrstu slysin urðu daginn fyrir gamlaársdag en þá slösuðust 3 drengir, 9, 16 og 17 ára. Drengirnir brenndust í andliti og á augum. Einn drengjanna slasaðist alverlega þegar andlitsbein brotnuðu vegna höggsins sem varð við sprengingu skotelds og hlaut hann einnig áverka á auga. Drengirnir voru að fikta við að taka skotelda í sundur og við það varð slysið.
Um áramótin sjálf urðu fjögur slys af völdum skoteld. Meðal þeirra sem slösuðust var fullorðinn maður sem hlaut áverka í andliti þegar skotkaka sprakk framan í hann. Á nýársdag slasaðist síðan 16 ára piltur þegar að hann var að taka skoteld í sundur og koma fyrir í glerkrukku.
Foreldrar fylgist sérlega vel með
Að sögn vakthafandi sérfræðings á augndeild Landspítala-háskólasjúkrahúss um áramótin, Maríu Soffíu Gottfreðsdóttur, þá voru 3 drengir lagðir inn vegna áverka af völdum skotelda. Einn er mikið slasaður og ekki er enn vitað hvort hann muni hljóta varanlegan skaða á öðru auga. María Soffía vill ítreka að foreldrar séu sérstaklega á varðbergi þessa dagana, fylgist vel með hvað börnin séu að gera og ræði við þau um hætturnar sem geta fylgt skoteldum - og brýni þar sérstaklega fyrir þeim að skoteldar eru ekki "leikföng".
Sala skotelda er leyfð til og með 6. janúar. Öll meðferð skotelda er bönnuð eftir kl. 1 frá og með 7. janúar. Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn virði þessar reglur.
Danskur drengur lést
Undirstrikað er enn frekar mikilvægi þess að fara eftir leiðbeininunum sem fylgja skoteldunum, hafa eftirlit með börnunum og alls ekki leyfa smábörnum að vera einum að meðhöndla skotelda. Allur leikur með skotelda getur haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér eins og dæmin sanna. Í því sambandi má nefna að sá hörmulegi atburður átti sér stað í Danmörku um áramótin að 2ja ára danskur drengur lést þegar að raketta lenti á honum. Slysið varð með þeim hætti að 16 ára piltur kveikti á rakettu sem lá á jörðinni - með fyrrgreindum afleiðingum.
13 slys á síðasta ári - sum urðu seint í janúar
Á síðasta ári slösuðust 13 unglingar og börn í kringum áramótin og það sem einkenndi þau áramót var hversu langt fram í janúar slysin urðu eða nokkrum vikum eftir að leyfilegt er að meðhöndla skotelda. Slysin urðu yfirleitt vegna fikts með skotelda - svipað og er að gerast í ár.
Herdís L. Storgaard
verkefnastjóri Árvekni-barnaslysavarna Lýðheilsustöð
