Lyklaböndin geta verið varasöm
Í byrjun vetrar mátti litlu muna að alvarlegt slys yrði þegar að 9 ára stúlka festi sig í leiktæki. Stúlkan var að leika sér í kastala á skólalóð og um hálsinn var hún með nælonband sem í var festur lykill með járnkrók. Þegar að stúlkan stökk úr tækinu hékk hún á bandinu því lykillinn hfi farið í rauf á tækinu og sat þar fastur. Stúlkan barðist um og við það brotnaði krókurinn og hún lostnaði. Skiljanlega varð hún mjög skelkuð en hlaut aðeins minni háttar áverka vegna þess hversu fljótt hún losnaði.
Hægt að gera böndin öruggari
Eftir að Árvekni var tilkynnt um þetta slys var farið að skoða þau bönd sem eru til sölu. Böndin eru mjög mismunandi, sum eru með öryggislæsingu (sjá mynd.- gult). Önnur eru heil eins og bandið sem stúlkan var með um hálsinn þegar að slysið átti sér stað (sjá mynd - blátt). Foreldrum er bent á að kanna böndin sem eru í notkun á heimilinu. Engin ástæða er til að henda þeim, heldur ætti að gera þau örugg með því að klippa þau í sundur og setja franskan rennilás á endana (sjá mynd - rautt).
![]() |
![]() |
![]() |
|---|---|---|
| Með öryggislæsingu | Engin öryggislæsing | Með frönskum rennilás |
Herdís L. Storgaard
Verkefnastjóri barnaslysavarna Árvekni



