12 ára drengur brennist á augum
Á síðustu vikum hefur fjöldi kennara og foreldra haft samband við Árvekni vegna barna sem eru að leika hættulega leiki sem rekja má beint til sjónvarpsefnis.
Sagt var frá því í Morgunblaðinu fyrir skömmu að 12 ára drengur hefði brennst á augum. Atburðurinn átti sér stað með þeim hætti að drengurinn var einn heima þegar dyrabjöllunni var hringt. Drengurinn fór til dyra og sá að þeir sem hringt höfðu voru 2 drengir á svipuðum aldri og hann. En þegar hann opnaði dyrnar þá sprautuðu þeir startvökva í augun á honum með fyrrnefndum afleiðingum.
Í Morgunblaðinu er því velt upp hvers vegna þetta hafi gerst. Nefnt er að þessa stundina er verið að sýna sjónvarpsþátt sem að hluta til gengur út á að hrekkja fólk og að hvetja aðra til að gera ýmislegt sem fullorðið fólk myndi annars ekki gera. Auglýsingar fyrir þættina hafa líka verið með þann boðskap að gera öðrum grikk og hafa foreldrar verið mjög áhyggjufullir vegna þessa. Ekki er hægt að sanna að rekja megi ofangreindan atburð til þessa sjónvarpsefnis en fólk er að velta því fyrir sér hvort tengsl séu þarna á milli.
Brýnt að skilja á milli raunveruleikans og sjónvarpsþátta
Til Árvekni hafa borist tilkynningar um nokkra sams konar atburði í áranna rás. Má þar nefna að börn hafi komist í hættuleg efni á bensínstöðvum og síðan notað þau á önnur börn. Einnig hafa börn tekið efni af ræstivögnum í skólum og sprautað þeim í andlit barna á skólalóðinni.
Fyrir u.þ.b. tíu árum brenndist drengur alvarlega á fótum við það að stökkva yfir loga af völdum kveikjarabensíns. Félagar hans höfðu sprautað kveikjarabensíni á gangstéttina og kveiktu svo í því. Þeir hvöttu drenginn til að stökkva yfir logann en um leið og hann stökk yfir sprautuðu þeir bensíni á hann með þeim afleiðingum að buxurnar hans fuðruðu upp. Fjöldi barna horfði á þetta sér til mikillar skelfingar.
Leik- og grunnskólakennarar segja að sjá megi atriði úr sjónvarpsþáttum eða -myndum í leik barna daginn eftir að þau hafi horft á þá í sjónvarpinu. Það hlýtur að vera á ábyrgð þeirra sem framleiða slíkt efni að huga að því fyrir hverja það er framleitt og hverær slíkt efni er á dagskrá. Á sama tíma bera foreldrar líka þá ábyrgð að fylgjast með því á hvað börnin eru að horfa og að þau skilji að ekki er allt sem sýnist og geri þeim grein fyrir því hversu alvarlegar afleiðingar geta orðið af því að herma eftir hættulegum atriðum í sjónvarpsþáttum.
Herdís L. Storgaard
verkefnastjóri barnaslysavarna,
Árvekni, Lýðheilsustöð
