Beint í leiðarkerfi vefsins.
Úthlutað hefur verið úr Forvarnasjóði fyrir árið 2010. Að þessu sinni er ríflega 71 milljón kr. úthlutað til 79 verkefna þar af er sérstök fjárveiting, 15 milljónir, sem ætluð er til sérstakra heilsueflingaverkefna. Alls bárust umsóknir um 129 verkefni.
Lesa meira
Á heimsþingi Alþjóðaheilbrigðismála-stofnunarinnar, 20. maí s.l., var samþykkt ályktun um hnattræna stefnumörkun til að draga úr skaðlegum áhrifum áfengisneyslu (Global Strategy to Reduce the Harmfule Use of Alcohol).
Lesa meira
Morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 19. maí n.k..
Morgunverðarfundir Náum áttum hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku.
Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning
Opnuð hefur verið vefsíðan frjáls.is sem ætluð er fagfólki, einkum á heilbrigðissviði, þar sem bent er á leiðir til að hvetja og styðja fólk til lífstílsbreytinga. Landlæknir, Geir Gunnlaugsson, opnaði síðuna formlega í dag í Heilsugæslunni í Mjódd að viðstöddu fjölmenni.
Næsti morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 24. febrúar og er yfirskriftin „Börn með ADHD - ekki gera ekki neitt“. Morgunverðarfundir Náum áttum hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku.
Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning
Lesa meira
Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði. Umsóknarfrestur er til 5. mars og er einungis tekið við umsóknum sem skilað er rafrænt á þar til gerðum eyðublöðum, sem hægt er að nálgast hér á vef Lýðheilsustöðvar.