Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Sumarið og fjölskyldan

2.6.2005

SAMANhópurinn hefur nú starfað hátt á sjötta ár. Í dag eiga 24 stofnanir og félagasamtök sem láta sig varða velferð barna og ungmenna fulltrúa í hópnum. Það hefur verið einn af föstum þáttum í starfi hópsins að vekja athygli á því að oft er sumarið sá tími sem ungt fólk byrjar að nota tóbak og/eða vímuefni.

Á sumrin eiga foreldrar, börn og unglingar mestan frítíma. Þá hafa unglingar líka oft meira fé á milli handanna en þeir eru vanir, einnig breytist oft vinahópurinn því vinnufélagar koma til sögunnar. Þess vegna vill SAMAN hópurinn minna foreldra og unglinga á að á sumrin gefst mörg tækifæri fyrir samvistustundir fjölskyldunnar til að safna góðum minningum saman.


SAMAN hópurinn hefur ákveðið að leggja áherslu á aldurshópinn 16-18 ára. Á næstu dögum verða send kort til foreldra þeirra sem eru að útskrifast úr 10. bekk þar sem minnt er á að börn eru börn til 18 ára aldurs og þurfa áfram á umhyggju, aðhaldi og eftirliti að halda. Í haust mun svo SAMAN gefa út bækling með heilræðum til foreldra nýnema framhaldsskóla í samvinnu við forvarnafulltrúa í skólunum.  Auk þessa er um þessar mundir að fara í prentun veggspjald með fyrirsögninni Áttu ungling? Lestu þá smáa letrið þar sem enn einu sinni er verið að hvetja fjölskyldur til að njóta samvista því samvera skapi góð tengsl.


Allt starf SAMAN hópsins byggir á rannsóknum.  Ólíkar rannsóknir hafa gefið okkur heildstæða mynd af stöðu mála. Hægt er að fylgjast með þróun neyslu áfengis- og vímuefna eftir tíma og á milli staða innanlands og utan. En það er grunnur að markvissu forvarnastarfi. Við getum líka séð hvað það er sem skiptir máli og þar hefur komið skýrt fram að hlutur foreldra og samverustunda fjölskyldna verður seint ofmetinn.   Ennfremur vitum við að það skiptir máli hvernig samveran er, hvernig foreldrar taka á sínu hlutverki, eftirlátssamir, stjórnandi eða leiðandi.  

Því vill SAMAN hópurinn segja takk við þessa ötulu fræðimenn og góðu samherja og hvetja þá til áframhaldandi rannsókna. Þeir eru: dr. Inga Dóra Sigfúsdóttir HR dr.Sigrún Aðalbjarnardóttir HÍ, dr. Þóroddur Bjarnason, HA og dr. Þórólfur Þórlindsson HÍ.

Saman hópurinn verðlaunForseti Íslands afhenti viðurkenningarskjöl.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica