Fundur með Robin Room 3. nóvember
Robin Room er heimsþekktur félagsfræðingur fæddur í Ástralíu og meðal virtustu fræðimanna á sviði áfengis- og vímuefnarannsókna. Hann er prófessor við háskólann í Stokkhólmi og forstjóri SoRAD, miðstöðvar Stokkhólmsháskóla í áfengis- og vímuefnarannsóknum. Þá hefur Robin Room verið ráðgjafi í áfengismálum hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO).
Eftir Robin Room liggur mikil fjöldi fræðigreina og rita um lýðheilsumál. Hann hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir rannsóknir sínar, þeirra á meðal heiðursverðlaun bandarísku lýðheilsusamtakanna (American Public Health Association) árið 2002.
Auk starfa í Svíþjóð hefur Robin Room unnið við lýðheilsurannsóknir í Bandaríkjunum og Kanada.
Erindið sem hann flutti á fundinum nefnir hann: ,,Alcohol policies: daydreams and evidence in an era of globalization".
Áhugasamir geta einnig lesið hér erindi sem Robin Room hélt á Norrænu vímuvarnaráðstefnunni á Íslandi árið 2003.
Áfengi - engin venjuleg neysluvara
Í tilefni af komu Robin Room til landsins lét Lýðheilsustöð þýða og gefa út í hefti samantekt úr bókinni Alcohol - No ordinary Commodity-Research and Policy (Babor og samstarfsmenn, 2003), sem Robin Room er einn af höfundunum af. Á íslensku nefnist samantektin: Áfengi - engin venjuleg neysluvara og með því að smella á nafnið opnast heftið í pdf útgáfu. Lýðheilsustöð hefur einnig sent öllum alþingismönnum heftið.
Í samantektinni er þess freistað að leggja vísindalegt mat á gagnsemi mismunandi aðgerða sem gripið hefur verið til í því skyni að koma í veg fyrir eða draga úr skaða sem rakinn er til áfengisneyslu, ekki síst með það í huga að niðurstöðurnar komi þeim að gagni sem eru að vinna áfengisstefnu.
Hafa ber í huga við lestur bæklingsins að hér er um að ræða hluta af stærra verki sem geymir ítarlegri upplýsingar um forsendur þeirra ályktana sem dregnar eru.
Höfundar minna á að í hverju landi sé nauðsynlegt að hafa lög og reglur sem mynda ramma utan um árangursríkar aðferðir til að draga úr tjóni af völdum áfengis og að áfengisstefna sé í grófum dráttum allar beinar aðgerðir og ákvarðanir sem yfirvöld eða samtök beita til að koma í veg fyrir tjón sem hlýst af völdum áfengis. Ennfremur að áfengisstefnu þurfi að styðja með viðeigandi úrræðum.
Faraldursfræðileg gögn sýna vel þá byrði sem hvílir á heimsbyggðinni og sem rakin er til áfengis - sem seint verður flokkað sem venjulega neysluvara. Talið er að neysla áfengis valdi um 4% allra sjúkdómstilfella í heiminum og tæplega 11% sjúkdómstilfella í Evrópu. Árið 2002 létust um 600 þúsund Evrópubúar vegna áfengisneyslu en þar af voru rúmlega 63 þúsund á aldrinum 15-29 ára. Búist er við að á árinu 2005 muni um 1,8 milljónir manna um allan heim látast vegna áfengistengdra vandamála.
Ljóst er að skaðleg áhrif áfengisneyslu er viðfangsefni er varðar lýðheilsu þjóða og mótun áfengisstefnu hlýtur meðal annars að miða að því að lágmarka þau áhrif.
Tengill á upplýsingar um rit eftir Robin Room.
