Fjölskyldan saman á áramótum
Póstkort verður sent inn á heimili landsmanna. Gamlárskvöld er eitt mest spennandi kvöld ársins og nýársnótt er töfranótt. En þá reynir á foreldra að velja að verja tíma með börnunum þar sem hefðbundið tómstundastarf þeirra liggur niðri. Gamlárskvöld þegar við kveðjum liðið ár og nýársnótt þegar nýjum tímum er fagnað er einstakt tækifæri til að skapa góðar minningar, öll fjölskyldan saman.
Samverustundir fjölskyldna hafa ótvírætt forvarnagildi. Rannsóknir hafa sýnt að þeir nemendur í 10. bekk sem njóta samvista með fjölskyldunni eru ólíklegri til að neyta vímuefna.
