Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Flott án fíknar - kynning á verkefninu

15.11.2006

Ungmennafélag Íslands hefur ákveðið að fylgja eftir Forvarnardeginum sem haldinn var 28. september síðastliðinn að frumkvæði forseta Íslands með forvarnaverkefninu Flott án fíknar en UMFÍ fékk styrk úr forvarnasjóði vegna þessa verkefnis. Kynning verður á verkefninu í Vetrargarðinum í Smárlind 17. nóvember kl. 16.

Kynnir verður Ásthildur Helgadóttir knattspyrnukona. Verkefnið verður síðan kynnt af þeim Birni B. Jónssyni, formanni UMFÍ, og Guðrúnu Snorradóttur verkefnisstjóra verkefnisins. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flytur ávarp. Ólöf Jara S. Valgeirsdóttir, söngkona, kemur fram með hljómsveitinni The black roses of poetry. Hundruð klúbbfélaga munu fá afhenta serhannaða boli fyrir Flott án fíknar.

Flott án fíknar er verkefni sem tekur til þriggja þátta, neyslu tóbaks, áfengis og ólöglegra fíkniefna. Verkefnið byggist á samningsbundnu klúbbastarfi og viðburðadagskrá þar sem unglingar skemmta sér saman á heilbrigðan og uppbyggilegan hátt. Hugmyndin hefur verið í þróun í fjögur ár í Lindaskóla í Kópavogi og reynst vel. Ungmennafélag Íslands hefur tekið að sér verkefnastjórn og kynningarstörf í þeim tilgangi að að allir unglingar landsins geti notið góðs af. Verkefnið er unnið í samvinnu við Lýðheilsustöð sem styrkir það fjárhagslega og Þórólf  Þórlindsson prófessor við Háskóla Íslands sem mun veita ráðgjöf í sambandi við mat á verkefninu og áframhaldandi þróun.

Hugmyndafræði klúbbsins Flott án fíknar snýst um að koma í veg fyrir að unglingar byrji að fikta við tóbak og áfengi og styrkja þá í þeirri ákvörðun. Markmiðið með klúbbastarfinu er að unglingum finnist eftirsóknarvert að eyða æskunni á heilbrigðan hátt og án tóbaks og vímuefna.

Rannsóknir sýna að áhrif jafningjahópsins eru mikil í lífi unglinga og því skiptir miklu máli að ungir sem aldnir standi saman um að skapa heilbrigða unglingamenningu. Ungmennafélag Íslands hvetur alla til að virða landslög um notkun tóbaks og áfengis og gera unglingsárin að góðum minningum fullorðinsáranna.

Ungmennafélag Íslands býður öllum sem áhuga hafa á að kynna sér klúbbastarfið Flott án fíknar að fá kynningu hvar sem þeir eru á landinu. Allir sem starfa með unglingum geta stofnað klúbb og er verkefnið bæði aðgengilegt og auðvelt í framkvæmd. Á næstu mánuðum mun verða haft samband og boðið til frekari kynninga en öllum áhugasömum er bent á að hafa samband við skrifstofu UMFÍ í síma: 568-2929.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica