Hollendingar vilja breyta lögum um áfengisauglýsingar
Í fréttatilkynningu frá STAP (National Foundation for Alcohol Prevention) kemur fram að hollenska ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp þess efnis að banna áfengisauglýsingar í ljósvakamiðlum fram til kl 21 00. Í gildi hafa verið vinnureglur sem ekki þykja nægilega verndandi gagnvart börnum og unglingum, sem þar í landi standa daglega berskjölduð gagnvart áfengisauglýsingum af margs konar tagi.
Áfengisauglýsingar skapa gjarnan jákvætt viðhorf
Bent er á að rannsóknir sýni að áfengisauglýsingar skapi jákvætt viðhorf til áfengis, meiri vilja til að neyta áfengis og aukinnar áfengisneyslu. Við þessa lagabreytingu mun Holland komast í hóp meirihluta Evrópusambandsríkja þar sem algert, eða bann að hluta, er við áfengisauglýsingum.
Í kjölfar frumvarpsins vonast talsmenn STAP til að algert bann verði sett við áfengisauglýsingum í ljósvakamiðlum, Interneti og kvikmyndahúsum. Að auki að stefnt verði að því að hækka áfengisgjaldið. Sérstaklega vonast STAP eftir því að verð á bjór verði hækkað. Lágt vöruverð áfengis í verslunum á stóran þátt í mikilli áfengisneyslu ungs fólks í Hollandi.
Í fréttatilynningunni er einnig tekið fram að þær leiðir sem virka best til að draga úr áfengisneyslu séu leiðir sem takmarka aðgengi að áfengi, s.s. bann við áfengisauglýsingum og áfengisgjald.
Sjá nánar á www.stap.nl
