Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði 2010
Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði. Umsóknarfrestur er til 5. mars og er einungis tekið við umsóknum sem skilað er rafrænt á þar til gerðum eyðublöðum, sem hægt er að nálgast hér á vef Lýðheilsustöðvar.
Tilgangur Forvarnasjóðs er að stuðla að forvörnum gegn áfengis- og vímuefnaneyslu. Hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á sviði áfengis- og vímuvarna í samræmi við stefnu og forgangsröðun ríkisstjórnarinnar í áfengis- og vímuvörnum hverju sinni. Styrkir eru veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum. Einstaklingum eru að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsóknaverkefna.
Áherslur Lýðheilsustöðvar vegna úthlutunar úr Forvarnasjóði árið 2010
- Lögð er áhersla á að verkefnin séu samstarfsverkefni og að þau tengist börnum og ungmennum í eða utan skóla.
- Í ár verða umsóknir sérstaklega metnar með tilliti til stefnu ríkisstjórnarinnar um að efla heilsugæsluna og lýðheilsustarf og forvarnir á þeim grunni.
- Mikilvægt að um sé að ræða stærri, umfangsmeiri og markvissari verkefni sem hægt er að fylgjast náið með hvað framkvæmd og framvindu varðar.
- Mikilvægt er að í umsókninni sé gerð grein fyrir því hvernig hægt sé að meta árangur verkefnisins.
Sé sótt um styrk til framhaldsverkefna þarf framvinduskýrsla að liggja fyrir.
