Hættu áður en þú byrjar
Myndin kallast líkt og fræðslan sjálf, Hættu áður en þú byrjar, en um er að ræða samstarfsverkefni Lögreglunnar í Reykjavík, Félagsþjónustunnar í Reykjavík og Marita á Íslandi. Fræðsla undir þessu nafni hefur farið fram fyrir 9. bekkinga og foreldra þeirra síðustu fjögur ár. Forvarnafræðslan sker sig úr að því leyti til að foreldrarnir fá sömu fræðsluna og unglingarnir og er tilgangurinn að skapa umræðugrundvöll um efnið á heimilinu.
Í myndinni er reynt að sýna íslenskan veruleika í fíkniefnaheiminum. Talað er við fíkla, sem segja sögu sína á sannfærandi hátt. Einnig er rætt við aðstandendur fíkniefnaneytenda og lögð áhersla á hversu auðvelt er að villast inn á þessa braut.
Aðalfræðslufulltrúi verkefnisins, Magnús Stefánsson, leggur mikla áherslu á það við unglingana að þeir geri strax upp hug sinn gagnvart fíkniefnum í fræðslunni og talar opinskátt um eigin reynslu af fíkniefnum.
Í vetur fá nemendur í 9. og 10. bekk tækifæri til að sjá myndina og er áhugi fyrir að fara með fræðsluna í framhaldsskóla.
Myndin eru unnin af Lindinni fjölmiðlun og Samhjálp 2002 og var framleiðsla hennar styrkt af Forvarnasjóði Áfengis- og vímuvarnaráðs og húsgagnaversluninni Línunni.
