Sími : 5 800 900

Geðrækt

Geðheilbrigði barna – fræðsluefni

Smella til að sækja pdf eintak af bæklingnum

Út eru komnir tveir Smella til að sækja pdf eintak af bæklingnumfræðslubæklingar um geðheilbrigði barna, annar ætlaður unglingum og hinn aðstandendum barna og unglinga. Bæklingarnir eru unnir á vegum Barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL) í samstarfi við Lýðheilsustöð og Landlæknisembættið. Þeir verða kynntir í fyrsta sinn á árlegri ráðstefnu BUGL ,,Snemma beygist krókurinn - Bjargráð og þjónusta í nærumhverfi" sem haldinn er föstudaginn 15. janúar, kl. 08.15-16.15, í Þróttarsalnum, Engjavegi 7 í Laugardal.

Lesa meira
 

Alþjóðageðheilbrigðisdagurinn 10. október

Alþjóðgeðheilbrigðisdagurinn 2009. Smellið á mynd til að stækka10. október ár hvert er haldið upp á alþjóðageðheilbrigðisdaginn með ýmsum viðburðum tengdum málefnum geðheilbrigðis. Yfirskrift dagsins í ár er: Öflugri og aðgengilegri geðheilbrigðisþjónusta. Í tilefni af deginum er efnt til hátíðarhalda í Mjódd í Breiðholti laugardaginn 10. október og hefst dagskráin kl. 13.   Lesa meira
 

Heilsuvika og Geðveikir dagar

Geðorð á vegg í Vogunum. smellið á mynd til að stækkaÞað fer í vöxt að sveitarfélög standi fyrir heilsuátaki í ákveðinn tíma og hvetji þá íbúa til að taka þátt í heilsueflandi atburðum. Oftar en ekki er leitað til Lýðheilsustöðvar með fræðsluefni og fagnar stöðin slíkum tækifærum til að koma að eflingu heilsu í sveitarfélögum. Nú stendur yfir heilsu- og forvarnavika í Reykjanesbæ og meðal atburða eru Geðveikir dagar þar sem geðorðin 10 eru í hávegum höfð. Lesa meira
 

Hlúðu að því sem þér þykir vænt um - Geðheilbrigðisdagurinn 2008 -

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert. Í ár er yfirskrift dagsins á Íslandi: „Hlúðu að því sem þér þykir vænt um“ og verður athyglinni einkum beint að ungu fólki. Viðamikil og skemmtileg dagskrá verður í tilefni af deginum og stendur hún yfir frá 6. - 10. október. Að auki hefur verið opnuð sérstök heimasíða geðræktardagsins: www.10okt.com

Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica