Sími : 5 800 900
Geðrækt

Lítill hluti fer til forvarna!

Samkvæmt Landlækni, Sigurði Guðmundssyni, er einungis 0.16 % af þeim fjármunum sem fara til heilbrigðis- og tryggingakerfisins ráðstafað sérstaklega til forvarna.

Þó fara að hans sögn töluvert meiri fjármunir óbeint til forvarna. Að mati Sigurðar vísa þessar staðreyndir á sóknarfæri fyrir verkefni eins og Geðrækt og fleiri um að leita eftir auknum fjárveitingum til forvarna. Einnig styrkjast sóknarfærin þegar nýútkomin heilbrigðisáætlun Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis til 2010 er lesin því hún er uppfull af forvarnarmarkmiðum sem óljóst virðist hvernig eða hverjir eigi að vinna að.







Þetta vefsvæði byggir á Eplica