Hvað er „hóflegt magn“ af sykri?
Við áramót leggja margir drög að betri lífsstíl á nýju ári og mataræðið er þar gjarnan efst á blaði. Sykurneysla landsmanna – og þá ekki síst barna- þykir í meira lagi en hvað er hóflegt magn af sykri?
Hóf og óhóf eru teygjanleg hugtök sem hver og einn skilgreinir væntanlega eftir sínu höfði. Næringarráðleggingar miða flestar við að í hollu fæði sé viðbættur sykur innan við 10% af kaloríum. Vandræðin felast í því að eingöngu fáir skilja hvað felst í þessum 10% þegar um er að ræða venjulegan mat, sætindi eða sykraðan mat. Það er því ekki úr vegi að útskýra málið nánar.
Næringarráðleggingar miða flestar við að í hollu fæði sé viðbættur sykur innan við 10% af kaloríum.
Mikið er spurt um mataræði barna og því er hér tekið saman yfirlit yfir sykurmagn í nokkrum algengum fæðutegundum sem börn leggja sér gjarnan til munns. Fyrir börn með algenga orkuþörf, þ.e. 2000 kkal á dag, samsvara tíu prósentin um það bil 50 grömmum af sykri (2000 kkal deilt með 40).
Þar sem í einni hálfs líters gosflösku eru 50 grömm af sykri er nokkuð ljóst að með þessari einu flösku er sykurneyslan komin að efri mörkum, og það án þess að börn setji inn fyrir sínar varir nokkuð annað sem inniheldur sykur. Ef súkkulaðikex er borðað með gosinu er sykurinn kominn í 15% og ef þar að auki er borðað annað hvort sykrað morgunkorn, sykrað jógúrt eða kókómjólk eru prósentin orðin 17 eða jafnvel meira. (sjá töflu). Það eru 13 g af viðbættum sykri í dós af sykraðri jógúrt og 11 g í kókómjólkurfernu. Í diski af algengri tegund af sykruðu morgunkorni eru 14 g og 8 g í meðalstórri jólakökusneið. Það er því ekki endilega nauðsynlegt að útiloka allt sem heitir sykur, jafnvel þótt vandað sé til fæðuvalsins en það er einfaldlega ekki rúm fyrir gosdrykki og sætindi í daglegu fæði barna.
Upplýsingar um viðbættan sykur í matvöru
Viðbættur sykur er því miður ekki merktur á umbúðir alla jafna, og því getur verið þrautin þyngri fyrir neytendur að átta sig á hversu miklum sykri hefur verið bætt í vöruna.
Hér eru töflur þar sem hægt er að sjá magn viðbætts sykurs ásamt öllum helstu næringarefnum í algengum matvörum á markaði.

Fyrir börn með algenga orkuþörf,
50 g súkkulaði/-kex

