Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Viðbættur sykur í matvælum

6.2.2008

Viðbættur sykur í matvælum hefur verið áberandi í umræðunni að undanförnu. Lýðheilsustöð hefur tekið saman ýmsan fróðleik um viðbættan sykur, t.d.: Hvað er viðbættur sykur? Einnig ráðleggingar um neyslu, myndir sem sýna viðbættan sykur í ýmsum vörutegundum og fleira. Þess er vænst að þessar upplýsingar veiti svör við einhverjum þeirra spurninga sem leitað hefur verið svara við.

Hvað er viðbættur sykur?

Sykur er náttúrulega til staðar í sumum matvælum, til dæmis sem mjólkursykur í mjólkurvörum og ávaxtasykur í ávöxtum og hreinum söfum. Um viðbættan sykur er hins vegar talað þegar sykri er bætt í matvörur við framleiðslu. Það er ekki bara hvítur sykur sem telst til viðbætts sykurs, heldur einnig síróp, hrásykur, púðursykur, mólassi, glúkósi (þrúgusykur) og ávaxtasykur (frúktósi), svo eitthvað sé nefnt. Hvaða nafn eða tegund sem sykurinn hefur þá er það viðbótin sem slík sem skiptir máli og almennt er ekki hollara að bæta í matvælin einni tegund sykurs en annarri. Sumir benda á að í hrásykri og hunangi séu næringarefni sem ekki eru til staðar í hvíta sykrinum en þau eru í svo litlu mæli að þau leggja nær ekkert til næringargildis fæðunnar, sé sykurneysla innan hæfilegra marka.

   

Myndir sem sýna magn viðbætts sykurs í ýmsum matvælum

Sykurmolarnir sýna magn viðbætts sykurs í matvælunum á myndunum en athugið að umbúðirnar á hverri mynd geta verið misstórar.

 

 Drykkjarvörur með og án viðbætts sykurs. Smella á mynd til að stækka.

 

 Mjólkurvörur með og án viðbætts sykurs. smella á mynd til að stækka

 

Mjólkurvörur með og án viðbætts sykurs. smella á mynd til að stækka
Morgunkorn með viðbættum sykri. smella á mynd til að stækka


Fróðleikur um sykur og sykurneyslu

Nammidagur - hugum að sykurmagninu

Sykur og aftur sykur - getum við hamið átið?

Hvað er „hóflegt magn“ af sykri?

Sykur og brauð - sitt af hvoru tagi

Ráðleggingar um mataræði og næringarefni

Næring ungbarna

Hvað hentar börnum best að drekka?

Drekkum vatn - hollasta svaladrykkinn

Viðbættur sykur í matvælum og tannheilsa

Ofþung börn - ráð til foreldra

Sykur í fæði íslenskra barna

Fæðuframboðstölur

Næring og hreyfing barna



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica