Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Lýðheilsa efld með hollara mataræði og aukinni hreyfingu

12.5.2005

Alþingi hefur samþykkt þingsályktun um að fela ríkisstjórninni að undirbúa áætlun um samræmdar aðgerðir til að efla lýðheilsu á Íslandi með hollara mataræði og aukinni hreyfingu.

Samkvæmt tillögunni verður faghópur á vegum forsætisráðuneytis settur á laggirnar til að greina vanda sem tengist óhollu mataræði, offitu, átröskun og hreyfingarleysi. Að lokinni greiningu á orsökum og afleiðingum á hópurinn að gera tillögur að samræmdum aðgerðum og framkvæmdaáætlun sem verði lagðar fyrir ríkisstjórnina í apríl 2006. Það er orðið brýnt að skipuleggja markvissar aðgerðir hér á landi sem stuðla að bættri næringu og hreyfingu og minnka líkur á frekari aukningu á offitu og átröskunum því fagnar Lýðheilsustöð samþykkt tillögunnar. Hér er um samfélagslegt vandamál að ræða og því mikilvægt að sem flestir í samfélaginu axli ábyrgð.

Skoða tillögu til þingsályktunar og greinargerð



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica