Hollustuan er ódýrari
Í verðkönnun á vegum Manneldisráðs og ASÍ þann 15. október koma m.a. fram þessi atriði:
- Hægt er að lækka matarreikninginn með því að fylgja ráðleggingum um hollustu.
- Það kostar 4.068 kr á mánuði að fylgja ráðleggingum um 500 g af grænmeti, ávöxtum og kartöflum á dag.
- Það kostar 2.025 kr á mánuði eða 72 kr á dag að fylgja ráðleggingum um 200 g af grænmeti á dag.
- Grænmeti, ávextir og kartöflur eru 16% af heildarverði meðalkörfu en 30% af verði hollustukörfu.
Könnun á matvöruverði
Í ljósi umræðu um hátt verð á ýmsum hollustuvörum hefur Manneldisráð, í samvinnu við ASÍ, kannað kostnað við að fylgja ráðleggingum um hollt mataræði. Útbúnar voru tvær matarkörfur, hollustukarfa og meðalkarfa, og verð þeirra kannað í helstu matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu þann 15. október síðastliðinn.
Mánaðarskammtur af matvörum kostaði 15.487 kr á mann í meðalkörfu en 14.049 kr í hollustukörfu. Hollustukarfan reyndist því 9,3% ódýrari. Einstakir liðir voru þó hærri í hollustukörfunni, ekki síst grænmeti og ávextir, sem vega mjög þungt í hollustukörfunni. Grænmeti kostaði 2.025 kr á mann í hollustukörfu en 1.007 kr í meðalkörfu. Samtals var kostnaður vegna grænmetis, ávaxta og kartaflna 30% af verði hollustukörfu en 16% af meðalkörfu. Aðrir liðir voru lægri í hollustukörfu, og þar munaði mest um minni útgjöld í sykur, sælgæti og gosdrykki sem voru 1% af hollustukörfu en 16% af meðalkörfu. Einnig var minna af kjöti í hollustukörfu og hafði það áhrif á heildarverðið.
Hár matarkostnaður
Könnunin var gerð í átta stærstu matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu sem samtals ráða yfir 94% markaðar á svæðinu. Reiknað var vegið meðalverð hverrar vöru í samræmi við markaðshlutdeild verslana og valin ódýrasta tegund hverrar vöru í öllum verslunum. Í hvorugri körfunni voru nein tilbúin matvæli, krydd eða áfengir drykkir. Eins var ekki gert ráð fyrir að neinn matur færi til spillis eða væri hent. Í ljósi þessa er heildarkostnaður við matarkaup mjög hár, eða 61.948 kr fyrir fjögurra manna fjölskyldu með meðalkörfu og 56.196 kr með hollustukörfu.
50 kg af mat og drykk á mánuði á mann
Báðar körfurnar hafa jafnmargar hitaeiningar, eða um 2000 kcal á dag sem er nokkurn veginn meðalþörf allra aldurshópa. Flestir karlar og ungt fólk þurfa að borða töluvert meira en sem þessu nemur, en margar konur og börn þurfa heldur minna. Í hollustukörfunni er magn allra bætiefna, fitu, próteina, sykurs og trefjaefna í samræmi við manneldismarkmið og ráðleggingar. Meðalkarfan endurspeglar hins vegar meðalneyslu samkvæmt könnunum Manneldisráðs og fæðuframboði. Magn sykurs og fitu, einkum mettaðrar fitu, er því mun minna í hollustukörfunni, en þess í stað er heldur meira af próteinum og heildarkolvetnum. Hollustukarfan er þyngri og vegur um 46 kg á mann fyrir utan drykki en meðalkarfan 35,5 kg. Með drykkjarföngum eru aðföng til heimilis um 200 kg á mánuði fyrir fjögurra manna fjölskyldu.
Ríflega 500 grömm af grænmeti, ávöxtum og kartöflum lenda í hollustukörfu á dag, þar af um 200 g af grænmeti, 200 g af ávöxtum og 100 g af kartöflum. Gert er ráð fyrir að fisk- og kjötmáltíðir séu hvor um sig tíu sinnum í mánuði og grænmetis-, pasta eða baunaréttir átta sinnum. Þessi skipan mála þarf þó ekki að vera neitt náttúrulögmál, t.d. er hægt að fá öll nauðsynleg næringarefni með því að borða mun minna kjöt, en þá þarf að auka aðrar prótein- og járnríkar vörur í staðinn. Um 600 g af mjólk og mjólkurvörum eru í hollustukörfunni á dag en mjólkin er að mestu leyti fitulítil. Fyrir þá sem ekki þola mjólk er valin sojamjólk en hún er hins vegar mun dýrari en venjuleg mjólk og er ekki gert ráð fyrir þeim kostnaði hér. Kornmaturinn er fyrirferðamikill, gert er ráð fyrir 5 brauðsneiðum á dag, auk morgunkorns, múslí, hrísgrjóna og pasta. Mesti munurinn á körfunum tveimur er að í hollustukörfu er ekkert sælgæti eða gos en þess í stað meira af grænmeti, ávöxtum, mögrum mjólkurvörum og kornmat. Þeir sem borða grænmeti og ávexti samkvæmt ráðleggingum en leyfa sér jafnframt að borða einhver sætindi, borga því væntanlega enn hærri matarreikning.
Óheimilt er að vitna í þessa könnun í auglýsingum eða við sölu nema með heimild Manneldisráðs eða ASÍ
Sjá myndir sem fylgja.
Mynd 1. Hollustukarfa og meðalkarfa
Mynd 2. Hvað er í matarkörfunum
Mynd 3. Í hvað fara matarpeningarnir
Nánari upplýsingar um hollustukörfu
