Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Tengsl lífshátta og krabbameins

2.11.2007

Hvernig mataræði okkar er háttað og hversu mikið eða lítið við hreyfum okkur hefur áhrif á hættuna á því aðSecond_Expert_Report001. Smella á mynd til að skoða skýrsluna. fá krabbamein, eins og fram kemur í nýrri skýrslu World Cancer Research Fund og American Institute for Cancer Research ,,Food, Nutrition, Physical Activity, and the Prevention of Cancer: a Global Perspective”.

Höfundar skýrslunnar fóru ítarlega yfir rannsóknir sem gerðar hafa verið á tengslum lífshátta og krabbameins og birtu í kjölfarið ráðleggingar annars vegar fyrir einstaklinga og hins vegar heilbrigðisstarfsfólk. Sé farið að ráðleggingunum á að vera hægt að draga úr líkunum á að fá krabbamein.

Hér er heimasíða um skýrsluna:

http://www.dietandcancerreport.org/

Hvað varðar mataræði og næringarefni þá svipar ráðleggingunum í skýrslunni til ráðlegginga Lýðheilsustöðvar/manneldisráðs, með þeim undantekningum þó að í skýrslunni er gengið lengra varðandi kjörþyngdarmörk. Lýðheilsustöð mun fara vel yfir niðurstöður og ráðleggingar nýju skýrslunnar.


Helstu ráðleggingar í skýrslunni:

  • Að halda þyngdinni innan marka
  • Að hreyfa sig í a.m.k. 30 mínútur daglega
  • Að takmarka neyslu á orkuríkum mat og sykruðum drykkjum
  • Að neyta sem mest af fæðu úr plönturíkinu, þ.e. borða mikið af grænmeti, ávöxtum, grófum kornvörum og baunum.
  • Að draga úr neyslu á unnum kjötvörum, m.a. vegna saltinnihalds
  • Að takmarka neyslu áfengis
  • Æskilegast er að uppfylla þörf fyrir næringarefni að mestu leyti úr fæðunni í stað þess að taka fæðubótarefni. Hér á Íslandi er þó mælt með fullorðnir og börn taki inn þorskalýsi eða annan D-vítamín gjafa daglega. Að auki er konum sem geta orðið barnshafandi ráðlagt að taka 400 míkrógrömm af fólinsýru daglega.
  • Mælt er með að ungbörn fái eingöngu móðurmjólk fyrstu 6 mánuði ævinnar en að auki er æskilegt að ungbörn fái móðurmjólk með annarri fæðu eftir það. Á Íslandi er að auki mælt með að ungbörn fái AD-dropa frá 4 vikna aldri (sjá íslenskar leiðbeiningar um næringu ungbarna).

Ráðleggingar Lýðheilsustöðvar/manneldisráðs um mataræði og næringarefni

Íslenskar leiðbeiningar varðandi næringu ungbarna

 

Grein um tengsl áfengisneyslu og brjóstakrabbameins

 

 

 

 

 

 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica