Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Bókin Holdafar-hagfræðileg greining hlýtur mjög góðar viðtökur

5.12.2007

TinnaBókin Holdafar – hagfræðileg greining, eftir Tinnu Laufeyju Ásgeirsdóttur heilsuhagfræðing, sem Lýðheilsustöð gaf út fyrir skömmu, hefur hlotið mikla athygli og um hana verið fjallað í mörgum fjölmiðlum landsins.

Fjölmiðlaumfjöllun

Smellið hér til að opna síðu með tengingu í þá fjölmiðla sem fjallað hafa um bókina.

Fullt út úr dyrum

Haldinn var kynningarfundur í tilefni af útgáfu bókarinnar í Norræna húsinu 26. nóvember sl. Um hádegisfund var að ræða og var fullt út úr dyrum. salurinn

Í upphafi fundar afhenti Tinna Ragnheiði Haraldsdóttur, sviðsstjóra stefnumótunarsviðs heilbrigðismála, í heilbrigðisráðuneytinu eintak.

Tinna kynnti síðan helstu umfjöllunaratriði bókarinnar og þær tillögur að aðgerðum sem hún lagði til að grípa mætti til svo stemma megi stigu við vaxandi ofþyngd og offitu á meðal landsmanna, ekki síst börnum. Í pallborði voru þrír sérfræðingar, á þeim sviðum sem umfjöllunarefnið tekur helst til, Inga Þórsdóttir, formaður manneldisráðs, Erlingur Jóhannsson, prófessor KHÍ, og Gylfi Zoëga, hagfræðiprófessor KÍ, og komu þeir með sína sýn á inntak bókarinnar, tillögur Tinnu og fleira.

Erlingur Jóhannsson Inga Þórsdóttir Gylfi Zoëga
Erlingur  Inga  Gylfi


ÞórólfurFundarmenn fengu síðan tækifæri til að spyrja Tinnu og pallborðsgesti, auk þess sem fundarstjóri, Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustöðvar, svaraði spurningu um aðgerðir Lýðheilsustöðvar á þessu sviði. Í heildina er mikil ánægja með þetta framtak og umræðan hefur verið mjög mikil um þennan vanda og hvað hægt sé að gera – sérstaklega til að snúa við þróuninni hvað börn varðar. Meðal þess sem fólk ræddi var mataræði og sykurneysla, hreyfingarleysi, stórir matarskammtar á veitingastöðum, bann við að beina auglýsingum um sætindi og aðra óhollustu að börnum, auðvelt aðgengi að hreyfingu, fjárráð fólks og margt fleira.

Bókin fæst í bókaverslunum

Bókin Holdafar - hagfræðileg greining fæst í öllum helstu bókaverslunum landsins en óski fleiri bóksalarHoldafar - Auglysing. Smella á mynd til að stækka eftir að fá hana í sölu eru þeir beðnir að snúa sér til Jóns Óskars Guðlaugssonar, s. 5800 922 eða senda pöntun beint á: pantanir@lydheilsustod.is

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica