Munum eftir þorskalýsinu - ein teskeið á dag
Nú þegar vetur er genginn í garð og sól lækkar á lofti er vert að minna á nauðsyn þess að fá sér daglega 1 teskeið (5 ml) af þorskalýsi eða annan D-vítamíngjafa.Öll þurfum við D-vítamín en það gegnir meðal annars mikilvægu hlutverki í kalkbúskap líkamans og er nauðsynlegt fyrir uppbyggingu beina. Á sumrin er hægt að fá nægilegt D-vítamín með því að láta sólina skína á andlit sitt og hendur í stuttan tíma á dag en á veturna er sólin ekki nógu hátt á lofti til að D-vítamín myndist í húðinni. Því er öllum ráðlagt að taka D-vítamín að vetri til (Ráðleggingar um mataræði og næringarefni).
Hæfilegt magn af lýsi
Sérstök ástæða er til að benda foreldrum 6 ára grunnskólabarna á að muna eftir lýsinu. Hingað til hafa þau flest fengið lýsið í leikskólanum og því hefur ekki þurft að huga að því heima. Vert er að taka fram að ekki er ráðlagt að taka meira en sem nemur einni teskeið af lýsi á dag, nema eldra fólki (61 árs og eldra) en því er ráðlagt að taka barnaskeið (10 ml) á dag.
Spurningar og svör um D-vítamín
Lýðheilsustöð í samvinnu við Matvælastofnun hafa unnið vefsíðu um vítamín og steinefni og þar er hægt að lesa meira um D-vítamín.
Ítarefni
http://www.lydheilsustod.is/frettir/naering-og-holdafar/nr/1224
http://www.lydheilsustod.is/frettir/naering-og-holdafar/nr/1713
Ráðleggingar um mataræði og næringarefni
(sjá sérstaklega bls. 16 og 17)
