Brjóstamjólk besta næringin fyrir ungbörn
Fyrir skömmu birtust fréttir um að danskir vísindamenn, sem mælt hafa eiturefni í brjóstamjólk, teldu ekki ráðlegt að gefa börnum hana eftir fjögurra mánaða aldur. Þetta gengur þvert á ráðleggingar danskra heilbrigðisyfirvalda sem vísa þessu á bug. Landlæknisembættið, Lýðheilsustöð og Miðstöð heilsuverndar barna leggja mikla áherslu á að brjóstamjólk sé besta næring fyrir ungbörn enda er talið að kostir móðurmjólkur sem helsta næring barna á fyrsta ári vegi miklum mun þyngra en gallar.Rannsóknir hafa sýnt heilsufarslega jákvæð áhrif móðurmjólkur fyrir heilsu ungbarna og móður. Það á einnig við um brjóstagjöf eftir fjögurra mánaða aldur. Niðurstöður undanfarinna ára benda til þess að lengd brjóstagjafar hafi einnig áhrif á heilsu síðar, þ.e. á heilsufarsþætti meðal skólabarna og fullorðinna (sjá nánar heimasíðu Rannsóknarstofu í næringarfræði Landspítala). Auk þess sem fyrirliggjandi eru yfirlitsgreinar (metaanalysur) um efnið.
Styrkur þrávirkra lífrænna efna (t.d. PCB, DDT, dioxin) hefur lækkað í blóði og brjóstamjólk síðastliðin ár eftir að notkun efnanna var mjög takmörkuð eða bönnuð. Það á einnig við hér á landi og hefur Kristín Ólafsdóttir dósent við Læknadeild HÍ birt niðurstöður efnagreininga á PCB og fleiri efnum í blóði mæðra fyrir nokkrum árum. Samkvæmt hennar rannsóknum hefur styrkurinn lækkað verulega síðastliðin 10 ár. Einnig hefur nýleg greining á kvikasilfri í blóði ungra kvenna sýnt lágan styrk.
Það er mikilvægt að mæla óæskileg efni í brjóstamjólk og reyndar öðrum mat líka. Kosti og galla næringar þarf ætíð að vega og meta í heild sinni. Til að draga úr magni eiturefnanna er mæðrum með börn á brjósti ráðlagt að borða fjölbreytta fæðu en jafnframt hafa í huga að í einstaka sjávarafurðum, svo sem hákarli, sverðfiski og stórflyðru, safnast aðskotaefni (t.d. þungmálmar og þrávirk lífræn efni, svo sem PCB-efni), sem er best að forðast. PCB-efni geta einnig safnast fyrir í lifur og fitu sumra fisktegunda og sjávarspendýra. Þær fisktegundir sem eru oftast á borðum hér á landi, t.d. ýsa, þorskur, smálúða, steinbítur, skötuselur, silungur og lax, eru heilnæm fæða sem konur með barn á brjósti ættu að njóta sem oftast.
Fræðslubæklingar um næringu ungbarna og mæðra á meðgöngu
Lýðheilsustöð hefur ásamt fleirum gefið út fræðsluefni um næringu ungbarna og mæðra á meðgöngu sem hægt er að skoða hér á vefsíðunni og prenta út. Þeir hafa verið þýddir á nokkur tungumál.

Skoða Matur og meðganga
Skoða Næring ungbarna
