Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Tillögur um framboð á matvörum í íþróttamannvirkjum

18.1.2010

Íþróttafélög og íþróttamannvirki - framboð á matvörum. Smellið á myndina til að skoða bæklinginnLýðheilsustöð hefur gefið út fræðsluefnið Tillögur um framboð á matvörum í íþróttamannvirkjum og hjá íþróttafélögum en markmiðið með útgáfunni er að stuðla að hollri næringu íþróttaiðkenda. Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR), Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur (ÍTR) og Íþróttasamband Íslands (ÍSÍ) standa að kynningu á efninu ásamt Lýðheilsustöð.  

 

Vitað er að holl næring skiptir miklu máli fyrir vellíðan og árangur barna og ungmenna í leik og starfi. Framboð og framsetning á mat og drykk getur haft úrslitaáhrif á hvaða matvara verður fyrir valinu hverju sinni. Til þess að bæta mataræði barna og ungmenna er nauðsynlegt að margir taki höndum saman og hafa forsvarsmenn og þjálfarar íþróttafélaga / íþróttamannvirkja þar mikilvægu hlutverki að gegna. Þeir geta haft áhrif til hins betra með því að setja heildræna næringarstefnu og aðgerðaráætlun með tilliti til eftirfarandi:

  • huga vel að því hvaða matur er í boði í sjoppum, veitingastöðum og sjálfsölum í íþróttamannvirkjum og hvort eigi að bjóða þar til sölu sælgæti, gos og snakk.
  • koma með leiðbeiningar um æskilegt mataræði á keppnisferðalögum.
  • bjóða upp á fræðslu um hollt mataræði.

 

Smellið á tengilinn til að skoða bæklinginn, prenta út eða panta.

 

 

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica